Hafa ekki uppfyllt markmiðið frá 2008 3. apríl 2012 09:00 Samdráttur Íbúðalánasjóður lánaði 24 milljarða króna í ný útlán í fyrra. Það er um þremur milljörðum krónum minna en árið áður. Sjóðurinn ætlar að bjóða upp á óverðtryggð lán frá og með næstkomandi hausti. fréttablaðið/Vilhelm
Íbúðalánasjóð vantar um tíu milljarða króna til að uppfylla markmið um eiginfjárhlutfall sjóðsins sem sett er fram í reglugerð. Íslenska ríkið mun þurfa að leggja fram upphæðina. Stefnir að því að bjóða upp á óverðtryggð lán í haust. Íbúðalánasjóður (ÍLS) hefur ekki uppfyllt langtímamarkmið sitt um eiginfjárhlutfall, sem er 5%, í tæp fjögur ár. Það var 8% um mitt ár 2008 en var 2,3% um síðustu áramót, þrátt fyrir að íslenska ríkið hafi lagt sjóðnum til 33 milljarða króna fyrir rétt um ári. Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri ÍLS, segir að eigandi sjóðsins, íslenska ríkið, þurfi að leggja honum til um tíu milljarða króna svo hann nái að uppfylla langtímamarkmið sitt um eiginfjárhlutfall. ÍLS birti ársreikning sinn í lok síðustu viku. Þar kom fram að sjóðurinn hefði skilað 986 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 34,5 milljarða króna tap á árinu áður. Á fjáraukalögum ársins 2010 fékk fjármálaráðherra heimild til að leggja sjóðnum til 33 milljarða króna til að styrkja eiginfjárstöðu hans. Loforðið var fært til eignar og hækkunar á eigin fé í árslok 2010. Framlagið var síðan greitt út í lok mars 2011 í formi ríkisskuldabréfa. Heildareignir ÍLS námu 864 milljörðum króna um síðustu áramót. Þar af voru útlán til viðskiptavina 782 milljarðar króna. Ný útlán á árinu 2001 voru 24 milljarðar króna sem var þremur milljörðum króna minna en árið áður. Alls voru 21,8 milljarðar króna bókfærðir á ársreikningi sjóðsins í árslok 2011 og 8,3 milljarðar króna voru afskrifaðir endanlega á því ári. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var 2,3%, sem er töluvert undir því langtímamarkmiði hans að hlutfallið sé yfir 5%. Sigurður segir markmiðið þó enn raunhæft. Til að ná því séu tvær leiðir færar. Önnur er sú að það komi í ljós að sjóðurinn hafi ofmetið afskriftarþörf sína, og geti þar af leiðandi nýtt fé sem er á afskriftarreikningi sem eigið fé. Sigurður segist þó ekki sjá annað í stöðunni en að afskriftasjóðurinn verði nýttur að fullu. Hin leiðin er að ríkið leggi ÍLS til nýtt eigið fé, sem þyrfti þá að vera um tíu milljarðar króna. „Öll okkar samskipti við eigandann ganga út frá því að það muni þurfa eiginfjárframlag frá honum fyrr eða síðar. Þá erum við að tala um svona tíu milljarða króna. Hins vegar hafa stjórnvöld ekki gefið okkur alveg skýr svör um hvenær við fáum þetta aukna eiginfjárframlag. Það hefur verið rætt um að það verði á þessu ári, en við höfum þó ekki fengið skýr svör við því." ÍLS hefur tilkynnt að sjóðurinn ætli sér að bjóða upp á óverðtryggð íbúðalán frá og með komandi hausti. Að sögn Sigurðar er sú vinna komin vel á veg. „Miðað við þau viðbrögð sem við höfum fengið þá er engin ástæða til að ætla annað en að þetta verði hægt." thordur@frettabladid.is
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira