Íbúðalánasjóð vantar tíu milljarða króna úr ríkissjóði 3. apríl 2012 00:01
Íbúðalánasjóður þarf allt að tíu milljarða króna frá ríkissjóði Íslands til að uppfylla markmið sitt um eiginfjárhlutfall. Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, staðfestir þetta og segir að rætt hafi verið um að eiginfjárframlagið yrði reitt fram á þessu ári, ekki hafi þó fengist niðurstaða í þá umræðu. Íbúðalánasjóður fékk 33 milljarða króna framlag úr ríkissjóði í lok mars 2011 til að styrkja eiginfjárstöðu sína. Það framlag var nær allt fært á afskriftarreikning til að mæta viðbúnum útlánatöpum sjóðsins. Því nýttist framlagið ekki til að auka eiginfé hans. Í ársreikningi Íbúðalánasjóðs, sem var birtur í lok síðustu viku, kemur fram að eiginfjárhlutfall sjóðsins sé 2,3 prósent. Samkvæmt reglugerð um starfsemi sjóðsins á langtímamarkmið hans að vera að hlutfallið sé yfir 5 prósent. Það hefur ekki náð að vera svo hátt frá miðju ári 2008. Sigurður segir markmiðið þó enn raunhæft. „Það er alveg ljóst að það er stefnt að því að styrkja eiginfjárhlutfallið. Það er þá eigandinn, íslenska ríkið, sem þarf að gera það. Á meðan afkoman hjá okkur er nokkuð fyrirsjáanleg og það er ekki taprekstur á starfseminni þá sleppur fyrir horn að ná ekki markmiðinu. En ef við sæjum í pípunum að það væri eitthvað fram undan sem við þyrftum að hafa áhyggjur af, til dæmis frekari útlánatöp, þá myndum við þurfa að bregðast hratt við." Íbúðalánasjóður skilaði 986 milljóna króna hagnaði í fyrra. Að sögn Sigurðar er afkoman hvorki sérstaklega góð né sérstaklega slæm. „Þetta er í jafnvægi. Við erum enn að vinna okkur út úr aðstæðum sem sköpuðust við hrunið. Við erum enn með háar fjárhæðir á afskriftarreikningi, sem búið er að eyrnamerkja, en við eigum eftir að úthluta." - þsj / sjá síðu 16
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira