Regnhlífarlög sett um fjármálamarkað 25. mars 2012 15:30 Í skýrslunni, sem er rúmar hundrað blaðsíður, er farið yfir orsakir þess ástands sem hér skapaðist fyrir hrun og í hruninu, og hvaða leiðir eru færar til að koma í veg fyrir það. Fréttablaðið/vilhelm
Stöðugleikaráð skipað æðstu mönnum, með víðtækar heimildir til gagnaöflunar og inngripa, er meðal hugmynda sem settar eru fram í nýrri skýrslu um framtíð íslensks fjármálakerfis. Von er á frumvörpum til lagabreytinga á haustþingi. Frumvarp að eins konar regnhlífarlögum fyrir alla fjármálastarfsemi landsins verður lagt fram á þingi í haust, ef hugmyndir sem settar eru fram í nýrri skýrslu um framtíðarskipan fjármálakerfisins verða að veruleika. Tilgangurinn með slíkri rammalöggjöf væri að samþætta reglur um banka, verðbréfafyrirtæki, lífeyrissjóði og opinbera lánasjóði á borð við Íbúðalánasjóð, og tryggja þannig að í grundvallaratriðum gildi sambærilegar reglur um alla þá starfsemi, og jafnframt að kveða með skýrum hætti á um verkaskiptingu opinberra stofnana og hvar ábyrgðin liggur á eftirliti með stöðugleika fjármálakerfisins í heild sinni. Hluti af slíkri löggjöf væri sérstakt stöðugleikaráð undir forystu efnahags- og viðskiptaráðherra. Fyrirmyndin að því yrði samráðshópur Seðlabankans um fjármálastöðugleika, sem starfaði árin fyrir hrun, en stöðugleikaráðið hefði þó mun víðtækari heimildir til upplýsingaöflunar og inngripa. Hugmyndin sem sett er fram í skýrslunni er að í ráðinu sætu einnig fjármála- og velferðarráðherra, Seðlabankastjóri og forstjórar Fjármála- og Samkeppniseftirlits. Árni Páll Árnason, þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, setti vinnu við skýrsluna af stað í fyrrahaust og núverandi ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, kynnti hana til sögunnar í gær. Á fundinum áréttaði Steingrímur að í skýrslunni væri ekki að finna beinar tillögur heldur fremur hugmyndir að leiðum sem hægt væri að fara til að koma í veg fyrir að sams konar ástand skapaðist aftur á íslenskum fjármálamarkaði og það sem leiddi til hrunsins 2008. „Það verður ekki undan því vikist að taka þetta allt til endurskoðunar," sagði Steingrímur á fundinum í gær. Steingrímur hefur þess vegna skipað sérfræðingahóp sem ætlað er að fara yfir skýrsluna og skila tillögum um breytingar á lagaumgjörð fjármálamarkaðarins fyrir haustið. Í hópnum sitja Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, sem einnig hafði veg og vanda af skýrslugerðinni, Gavin Bingham, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá BIS-bankanum í Basel, og Kaarlo Jännäri, fyrrverandi forstjóri finnska fjármálaeftirlitsins. Jafnframt kom fram í máli Steingríms að meðal þess sem yrði skoðað sérstaklega væri aðskilnaður viðskipta- og fjárfestingarbankaþjónustu, sem flest rök hnigu að, og staða innistæðutryggingakerfisins.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira