Viðskipti innlent

Gæti tekið mánuði að klára endurútreikninga gengislána

Birna segir að samrunaferlið við Byr hafi gengið sérlega vel. Það hafi verið flókið en það hafi skipt miklu máli hversu jákvætt starfsfólk bankanna hafi verið í garð sameiningarinnar.fréttablaðið/gva
Birna segir að samrunaferlið við Byr hafi gengið sérlega vel. Það hafi verið flókið en það hafi skipt miklu máli hversu jákvætt starfsfólk bankanna hafi verið í garð sameiningarinnar.fréttablaðið/gva
Samruni Íslandsbanka og Byrs, sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði, verður að fullu frágenginn um helgina. Við það mun efnahagsreikningur Íslandsbanka stækka um fimmtung. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir samrunaferlið hafa gengið sérlega vel. „Það er mjög flókið ferli að flytja viðskipti eins banka yfir á annan, upplýsingatæknilega séð. Við erum búin að sameina fimm útibú og breyttum Byr-útibúinu í Hraunbæ í Íslandsbankaútibú. Þó að tæknilegi þátturinn skipti gríðarlega miklu máli þá skiptir ekki síður máli hversu jákvætt starfsfólkið hefur verið í garð sameiningarinnar.

Þegar við höfum verið að opna útibúin á ný eftir sameiningu þá hafa viðskiptavinirnir verið að mæta til að kanna hvort sitt fólk sé ekki alveg örugglega á staðnum. Þeir eru svo tengdir sínu starfsfólki. Þegar þeir sjá að svo er þá er viðskiptavinurinn ánægður. Og þá erum við ánægð. "

Sársaukafullt ferliSamruninn hefur þó verið fjarri því sársaukalaus. Alls hefur stöðugildum verið fækkað um 125 í tengslum við hann. Um 50 var sagt upp störfum, starfsamningar annarra voru ekki endurnýjaðir, sumum var boðið upp á starfslok áður en þeir voru komnir á aldur og ekki var ráðið í störf þegar starfsmenn hættu.

Að sögn Birnu er vilji til þess innan bankans að ná fram enn frekari hagræðingu og áætlanir um hvernig sé hægt að ná henni fram liggja fyrir. „Við vonumst þó til þess að það verði hægt að hagræða án frekari sársaukafullra aðgerða. Það er hægt að fara aðrar leiðir. Við erum til dæmis komin langt með að klára endurskipulagningu á lánasafni bankans. Við það starfa margir starfsmenn á stuttum samningum sem munu renna út. Við erum að sjá fyrir okkur að það verði fækkun í þessum hluta starfseminnar þegar við horfum fram á veginn. En auðvitað vonum við að sem flestir geti fengið önnur störf sem stafa af vexti bankans í framtíðinni. Þar verða tækifæri og vonandi getum við boðið upp á störf sem þykja spennandi á þeirri hliðinni."

Stærsti samruninnSamruni Íslandsbanka og Byrs er langstærsti einstaki samruni fjármálafyrirtækja sem átt hefur sér stað eftir bankahrun. Birna telur ekki ómögulegt að ráðast í enn frekari sameiningar, þótt það yrði líkast til þungt í samkeppnislegu tilliti. „Mín skoðun er sú að það sé mikil samkeppni á fjármálamarkaðinum. Samkeppniseftirlitið er búið að gefa það út að það yrði þungt að ráðast í stórar sameiningar á honum. En það er þó ekki alveg útilokað. Það væri hægt að framkvæma þær með ýmiss konar skilyrðum. Það er ekkert ómögulegt. En svo verður bara að sjá hvað verður gert með þá sparisjóði sem eftir eru. Það hefur komið fram áður opinberlega að við gerðum tilboð í Sparisjóð Norðfjarðar og að við höfum áhuga á að koma að þeim rekstri. Það var hins vegar ákveðið að taka engu tilboði í hann."

Flækjustig í gengisdómamálumFyrr í febrúarmánuði féll enn einn gengislánadómur í Hæstarétti sem hefur í för með sér að endurreikna þarf fjölmörg lán sem bankarnir voru þegar búnir að endurreikna. Spurð um heildarkostnað bankans vegna þeirra leiðréttinga sem hann þarf að ráðast í í kjölfar dómsins segir Birna þá vinnu standa yfir. Fjármálaeftirlitið sé búið að stilla upp ákveðnum sviðsmyndum varðandi málið. „Flækjustigið liggur í því hvernig eigi að standa að útreikningnum. Dómurinn svarar því í sjálfu sér ekki skýrt. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hafa bankarnir óskað eftir því við Samkeppniseftirlitið að fá leyfi til að ræða saman um hvernig við endurreiknum þetta þannig að þetta verði samræmt milli bankanna. Ef það verður jákvætt þá er það mín skoðun að sú leið sé betri en aðrar.

Síðan eiga eftir að falla fleiri dómar sem segja skýrar með hvaða hætti við eigum að gera þetta. Einhverjir þeirra eru í pípunum. Það þarf að taka ákvörðun um hvort beðið verði eftir þeim eða hvort það verði tekinn einn snúningurinn enn áður en lokaniðurstaða liggur fyrir."

Óvissa um endurreikningaTöluverð óvissa hefur einkennt umræðuna um hversu víðtæk áhrif hins nýfallna dóms séu. Að mati Birnu nær hann yfir þau lán sem hafa verið dæmd ólögleg. „Lögin sem sett voru í desember 2010 sópuðu saman ákveðnum lánaflokkum og hætt var við málarekstur í mörgum þeirra í kjölfarið. Sú lagasetning leysti ákveðinn vanda. Við tókum henni að hluta til fagnandi. Það var búið að dæma að bílalánin væru ólögleg á þessum tíma og við vorum í vandræðum með hvernig við ættum að endurreikna lánin og lagasetningin svaraði því. En við stöndum kannski á sama stað núna og fyrir þá lagasetningu. Hvernig eigum við að reikna þetta? Því hefur ekki verið svarað. Við vorum svo sannarlega ekki að búast við því að byrja neðst í bunkanum aftur."

Gæti tekið mánuðiBirna segist ekki geta sagt til um hvenær niðurstaða um hvernig eigi að reikna lánin liggi fyrir. Þó telur hún að það verði talið í vikum eða mánuðum. „Ein þeirra spurninga sem er ósvarað er hvort það þurfi að bíða eftir öðrum dómum. Ef svo er þá mun þetta taka lengri tíma. En ef samkomulag næst um hvernig eigi að reikna lánin ætti það að stytta þann tíma. Þetta er gríðarlega mikið verkefni. Íslandsbanki er til dæmis með um tólf þúsund bílalánasamninga. Það fylgir því töluverð vinna að fara í gegnum þá alla aftur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×