Gæti falið í sér milljarða ávinning fyrir sjóðina 8. febrúar 2012 11:00 Skýrsla um starfsemi lífeyrissjóða í aðdraganda bankahrunsins var kynnt síðastliðinn föstudag. Fréttablaðið/GVA
Lífeyrissjóðirnir munu fara fram á að dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að leggja mat á það hvort gögn sem lögð voru fram í umdeildu skuldabréfaútboði Glitnis í mars 2008 hafi endurspeglað raunverulega stöðu bankans. Sjóðirnir vilja meina að þeir hafi verið blekktir til að kaupa víkjandi skuldabréf í útboðinu fyrir samtals 10,7 milljarða króna og hafa stefnt slitastjórn Glitnis vegna þessa. Undirbúningur að málarekstrinum hefur staðið yfir mánuðum saman. Ef fallist verður á málatilbúnað lífeyrissjóðanna gæti ávinningur þeirra orðið umtalsverður. Verði skuldabréfin flokkuð sem almenn krafa, líkt og þau eru nú, munu sjóðirnir líkast til ekki fá nema um fjórðung greiddan fyrir þau miðað við væntar endurheimtur í þrotabúi Glitnis. Takist að fá skuldabréfin viðurkennd til skuldajöfnunar nýtist hins vegar mun meira af virði þeirra. Það væri þá hægt að nota bréfin til skuldajöfnunar gegn tapi á gjaldmiðlavarnarsamningum. Tap íslenskra lífeyrissjóða vegna þeirra gæti orðið rúmlega 70 milljarðar króna eftir skuldajöfnun eins og staðan er í dag ef ýtrustu kröfur þrotabúa föllnu bankanna verða samþykktar. Tap sjóðanna vegna samninganna er bókfært á 36,4 milljarða króna í skýrslu úttektarnefndar sem birt var síðastliðinn föstudag. Þar er miðað við uppgjör á gengisvísitölunni 175. Hvorki skilanefnd Kaupþings né Glitnis hafa fallist á uppgjör á þeim forsendum.- þsj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira