Í höndum stjórnar OR að veita umboð 7. febrúar 2012 07:00
Aðkoma lífeyrissjóðanna að fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar kemur til af því að Orkuveitan ræður ekki við verkefnið. Heildarkostnaður er talinn 29 milljarðar króna. Formlegar viðræður bíða þess að forstjóri OR fái til þess umboð stjórnar. Ástæða þess að uppi eru hugmyndir um sérstaka verkefnafjármögnun Hverahlíðarvirkjunar er að Orkuveita Reykjavíkur (OR) ræður ekki við að byggja virkjunina á eigin reikning. Þetta segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar. „Þess vegna var leitað til lífeyrissjóðanna um fjármögnun." Bjarni segir hins vegar engar viðræður hafnar um verkefnið þótt lífeyrissjóðirnir hafi lýst áhuga sínum á því eftir könnunarviðræður sem hófust fyrir tæpu ári. Verkefnið félli vel að hugmyndum þeirra um góðar fjárfestingar, væri traust og til langs tíma, auk þess sem stuðlað væri að atvinnuuppbygginu. Sjóðirnir hafi hins vegar talið að skoða þyrfti samningana betur og málið þá verið látið bíða. „Um áramótin tóku Orkuveitan og Norðurál svo upp þráðinn á ný og leituðu sameiginlega til KPMG til að skoða hvernig að þessu mætti standa," segir Bjarni, en sú hugmynd hefur nú verið kynnt bæði í hópi stjórnarmanna OR og sveitarstjórnarmönnum í Reykjavík, á Akranesi og í Borgarbyggð. Hugmynd KPMG gengur út á að stofnað verði félag sem yrði í meirihlutaeigu lífeyrissjóðanna, en Orkuveitan myndi eignast í því hlut sem samsvaraði þeim fjármunum sem þegar hafi verið lagðir í undirbúning. „Virkjunin yrði þar með byggð án þess að Orkuveitan þyrfti að leggja fram nokkra fjármuni, þótt við myndum leggja fram þá eign sem þegar er þarna í jörðu, rannsóknir og boranir," segir Bjarni. Sú upphæð nemur rúmum fjórum milljörðum króna, en viðbótarkostnaður er metinn á 25 milljarða króna, en hann myndi dekka framlag lífeyrissjóðanna og lántaka félagsins um virkjunina. „Og þeir sem lána taka ekki veð í Orkuveitunni, heldur verkefninu sjálfu og tekjunum sem af því verða," segir Bjarni. Frekari útfærslu, svo sem um hvort Orkuveitan eignist virkjunina að einhverjum áratugafjölda liðnum segir Bjarni bíða samningaviðræðna. Telji stjórn OR verkefnafjármögnun Hverahlíðarvirkjunar vænlega leið þá gerir Bjarni hins vegar ráð fyrir því að fá frá henni umboð til að ganga til viðræðna um að koma verkefninu á koppinn. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir tillögur KPMG um tilhögun verkefnisfjármögnunar Hverahlíðarvirkjunar þess eðlis að Norðurál fái fellt sig við þær. Fyrirtækið hafi samið við bæði OR og HS Orku um orkuöflun fyrir álverið í Helguvík og þessi nálgun í fjármögnun virkjunarinnar sé liður í því að OR standi við það sem að fyrirtækinu snýr. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira