Ákvörðun tekin á næstu dögum 2. febrúar 2012 03:15 Malcolm Walker
Frestur til að skila bindandi tilboðum í hlut þrotabúa Landsbankans, sem á 67%, og Glitnis, sem á 10%, í Iceland Foods rann út á þriðjudagskvöld. Söluferlið hefur staðið yfir um nokkurra mánaða skeið. Alþjóðlegu stórbankarnir UBS og Bank of America Merril Lynch hafa haft umsjón með því og veitt þrotabúunum ráðgjöf. Í breskum fjölmiðlum hefur því verið haldið fram að þau vilji fá hátt í 1,2 milljarða punda, um 224 milljarða króna, fyrir hlut sinn. Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi þrotabús Landsbankans, segist ekkert geta gefið upp um hversu mörg eða há tilboðin voru né hverjir það voru sem skiluðu þeim inn. Reuters-fréttastofan greindi frá því í gær að búist hafi verið við því að fjárfestingasjóðirnir Bain Capital og BC Partners myndu skila inn tilboðum. Þá hafi verið áhugi til staðar hjá Wm Morrison-matvörukeðjunni að kaupa hlutinn auk þess sem Malcolm Walker, forstjóri og minnihlutaeigandi í Iceland, hefur unnið að því að koma saman tilboðshóp. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins munu stjórnendur þrotabúanna, ásamt ráðgjöfum sínum, nú taka sér nokkra daga til að fara yfir hvort tilboðin sem skilað var inn séu þess eðlis að vert sé að fara í frekari viðræður. Komist þeir að því að svo sé munu frekari viðræður fara fram. Enn er ekki útilokað að hætt verði við söluna. Iceland Foods er langstærsta seljanlega eign þrotabús Landsbankans. Keðjan er með um 2,1% markaðshlutdeild í Bretlandi og selur vörur árlega fyrir á fimmta hundrað milljarða króna. - þsj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira