Landslénið veltir 207 milljónum á ári 31. janúar 2012 05:00 Ekki er hægt að komast framhjá ISNIC ef ætlunin er að skrá lén með .is-endingu. Félagið rekur nafnaþjónustu og skráningakerfi fyrir lén með slíka endingu. Fréttablaðið/GVA
Internet á Íslandi hf. (ISNIC) velti 244 milljónum króna á árinu 2011 og hagnaðist um 55 milljónir króna. 206,9 milljónir króna, eða 85% af veltu félagsins, eru tekjur vegna landslénsins .is. Þetta kemur fram í ársreikningi ISNIC sem skilað var inn til ársreikningaskrár 23. janúar síðastliðinn. Ársreikningurinn er sá fyrsti sem skilað er inn fyrir árið 2011 og er þetta þriðja árið í röð sem ISNIC er fyrst til að skila. Stjórn ISNIC leggur til að félagið greiði út 30 milljónir króna í arð til eigenda félagsins á árinu 2012 vegna frammistöðu þess á árinu á undan. ISNIC hefur ekki greitt út arð frá 2006 þegar félagið var að mestu í eigu Teymis. Helstu eigendur ISNIC í dag eru Jens Pétur Jensen, framkvæmdastjóri félagsins (29,5%), Íslandspóstur hf. (18,7%), Magnús Soffaníasson (16,8%) og Bárður Tryggvason (16,2%). Innanríkisráðuneytið hefur um nokkurt skeið verið að vinna að frumvarpi um „landslénið .is og önnur íslensk höfuðlén“. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi 2011 og í kjölfarið tekið fyrir í samgöngunefnd án þess að vera afgreitt úr henni. Þann 14. nóvember síðastliðinn var því síðan útbýtt aftur á Alþingi án þess að vera tekið til umræðu. Í frumvarpinu felst meðal annars að rekstur og skráning íslenskra léna, sem ISNIC hefur séð um frá upphafi hérlendis, verði leyfisskyld til fimm ára í senn. Þar segir að starfsleyfi „fyrir íslensk höfuðlén skal veitt einum aðila til fimm ára í senn, að undangengnu opnu og gagnsæju ferli“. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) á að úthluta leyfinu. Þeir sem fengu slíku leyfi úthlutað þyrftu einnig að greiða 4,9% af ársveltu sinni í sérstakt rekstrargjald til PFS. Miðað við tekjur ISNIC vegna landslénsins á árinu 2011 myndi slíkur skattur nema um 10 milljónum króna á ári. Í skýrslu stjórnar ISNIC, sem fylgir ársreikningnum, er fjallað um umrætt frumvarp og í ábendingu endurskoðanda félagsins segir að „ákvæði frumvarpsins fela í sér umtalsverðar breytingar á rekstrarumhverfi Internets á Íslandi hf. Sökum þeirrar óvissu er varðar líkur á lagasetningu, gildistöku laganna og óljósar skuldbindingar, ríkir óvissa um áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins“. Jens Pétur segir að það þekkist hvergi að sérstakur skattur sé lagður á lén. Hann segist ekki trúa því að frumvarpið verði að lögum í því formi sem það hefur verið lagt fram. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira