Breytist í takt við breytt heilsufar þjóðarinnar 26. janúar 2012 17:30 Elías Gunnarsson, framkvæmdastjóri Stoðar, segir ánægjulegt að geta boðið upp á fyrirlestra í tilefni afmælis fyrirtækisins. Fréttablaðið/Stefán
Stoðtækjafyrirtækið Stoð hf. heldur upp á þrjátíu ára afmæli á þessu ári. Til að halda upp á tímamótin stendur fyrirtækið fyrir opnum fræðslufundum allt árið og fer sá fyrsti fram í dag. „Við ætlum að segja frá helstu stoð- og hjálpartækjum í þessum fyrirlestrum sem eru opnir öllum en eru einkum ætlaðir fólki úr heilbrigðisgeiranum, svo sem sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum, og svo viljum við gjarnan sjá nemendur í þessum greinum líka,“ segir Elías Gunnarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Þeir Sveinn Finnbogason og Þórir Jónsson stoðtækjafræðingar ríða á vaðið með fyrirlestrinum „Stutt við bakið“ sem fjallar um helstu lausnir í bakbeltum og bolspelkum. Fyrirlestrarnir verða alls ellefu á árinu og fjalla um stoðtæki frá ýmsum sjónarhornum,“ segir Elías en þess má geta að fyrirlestrarnir fara fram hjá Stoð í Trönuhrauni 8. Fyrirtækið Stoð var stofnað árið 1982 af tveimur stoðtækjafyrirtækjum og hefur vaxið hægt og bítandi. „Við höfum alla tíð einbeitt okkur að stoðtækjum ýmiss konar, spelkum og gervilimum. Á árunum 2000 til 2002 stofnuðum við svo nýja deild hér sem sér um hjálpartæki ýmiss konar og í kjölfar þess stækkaði fyrirtækið.“ Elías segir helstu breytingarnar sem hafa orðið á starfsemi fyrirtækisins undanfarin 30 ár tengjast breytingum á heilsufari þjóðarinnar. „Lömunarveiki og klofinn hryggur þekkjast til dæmis ekki lengur og ekki þarf því að aðstoða fórnarlömb þeirra. En aðrir sjúkdómar hafa tekið við eins og sykursýki og offita. Svo eldist þjóðin vitanlega.“ Frekari upplýsingar um afmælisdagskrá fyrirtækisins og fyrirlestra er að finna á heimasíðu fyrirtækisins stod.is. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira