Lögregla getur borið refsiábyrgð 10. apríl 2012 09:00 Lögregla fór óvarlega með persónuupplýsingar í sjónvarpsþætti á mbl.is að mati Persónuverndar. Fréttablaðið/Daníel
Persónuvernd beinir þeim tilmælum til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að gæta varúðar við meðferð persónuupplýsinga eftir að myndir og nafn fórnarlambs árásar voru birt á í sjónvarpsþætti á fréttavefnum mbl.is. Stofnunin minnir lögreglu á að refsiábyrgð geti legið við brotum á lögum um persónuvernd. Í þættinum var fjallað um rannsókn tæknideildar lögreglu í tengslum við tilkynningu um líkamsárás og rætt við lögreglumann sem rannsakaði málið. Sýndar voru ljósmyndir af áverkum hins meinta fórnarlambs, þar sem greina mátti andlit hans, auk þess sem greint var frá nafni hans í þættinum. Tekið var fram í þættinum að talið væri að maðurinn kynni að hafa veitt sér áverkana sjálfur og að í raun hafi því ekki verið um árás að ræða. Persónuvernd hafði áður gert bréflegar athugasemdir við lögregluna vegna sambærilegs efnis sem birtist í erindi sama lögreglumanns á Læknadögum árið 2010. Persónuvernd aðhafðist þó ekkert í kjölfarið þar sem stjórnendur lögreglunnar sögðu að vinnubrögð yrðu bætt. Í ákvörðun Persónuverndar segir að loforð um bætt vinnulag hafi ekki gengið eftir, og líta verði málið alvarlegum augum. - bj
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingi slitið Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Sjá meira