Þróa ætti miðstöð doktorsnáms í HÍ 10. apríl 2012 11:00 Í skýrslunni er lagt til að á grunni miðstöðvar framhaldsnáms við Háskóla Íslands verði þróuð miðstöð doktorsnáms. Þar gætu allir háskólar, rannsóknastofnanir og fyrirtæki sameinað krafta sína. fréttablaðið/vilhelm
Þróa ætti miðstöð doktorsnáms hér á landi þar sem allir háskólar, rannsóknarstofnanir og rannsóknafyrirtæki gætu sameinað krafta sína. Hægt væri að byggja slíka miðstöð á grunni miðstöðvar framhaldsnáms sem nú þegar er fyrir hendi í Háskóla Íslands. Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að skýrslu Vísinda- og tækniráðs, sem kynnt voru í síðustu viku. Í skýrslunni er í fyrsta sinn dregin upp heildstæð mynd af þeim háskólum, stofnunum, sjóðum og þeirri löggjöf sem vísinda- og nýsköpunarkerfið byggir á. Ráðið samþykkti fyrir ári að fela starfshóp að gera tillögur um einföldun á öllu kerfinu. Breytingatillögurnar eiga að efla vísindi og nýsköpun í landinu og verðmætasköpun í samfélaginu. Ísland stendur að ýmsu leyti á góðum grunni í þessum málaflokki að mati skýrsluhöfunda. Hlutfallslega mikið fjármagn er veitt til rannsókna og þróunarstarfs og fáar þjóðir hafa náð jafn góðum árangri í birtingu vísindagreina miðað við höfðatölu. „Á sama tíma er kerfið sem styður við vísinda- og nýsköpunarstarf svo og skipulag vísinda og nýsköpunarkerfisins bæði brotakennt og óskilvirkt. Þetta birtist meðal annars í því að heildarárangur er ekki í samræmi við hversu mikið fjármagn er veitt í kerfið.“ Sérstaklega er árangur á sviðum verðmætasköpunar í atvinnulífinu lakur. Sautján milljarðar króna fara á þessu ári úr opinberum sjóðum í vísindi og nýsköpun. Fjármagn til stofnana, háskóla og sjóða hefur rýrnað um fimm milljarða frá 2008. Á sama tíma hefur atvinnulífið veikst mjög. „Við lifum auðvitað óvenjulega tíma og óumflýjanlegan niðurskurð í opinberum útgjöldum, en þessi mikla blóðtaka hefur hvorki leitt til skipulagsbreytinga né nýrrar hugsunar í kerfinu.“ Hér á landi eru 84 prósent opinbers fjár til vísinda og nýsköpunar bundin í fjárveitingum til stofnana en aðeins 16 prósent eru veitt í samkeppni. „Við teljum brýnt að það verði sýnilegt að skattfé þjóðarinnar renni til þeirra verkefna, háskóla og stofnana sem skila mestum árangri og að jafnræði sé tryggt,“ segir meðal annars í skýrslunni. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Á áttunda tug taka afstöðu til sakar í Landsbankamálinu Innlent Fleiri fréttir Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Sjá meira