Þjóðverjar gistu í tjöldum í Bolungarvík - snjóskaflar allt í kring 10. apríl 2012 20:00 „
Hér er hlýtt og gott að vera," segir meðlimur í þýskum skíðaklúbbi sem skreið uppúr svefnpoka á tjaldstæðinu í Bolungarvík í morgun. það væri nú kannski ekki í frásögur færandi að maður hefði gisti í tjaldi í apríl á Íslandi nema fyrir það eitt að það var snjóþungt í Bolungarvík í morgun. Snjóskaflarnir hreinlega yfirgnæfðu tjöldin og Hafþóri lék forvitni á að vita hverjir leyndust þar inni. „Við erum úr Alpaklúbbnum í Freiburg. Við skipulögðum ferð hingað til Íslands til að skíða og njóta náttúrufegurðarinnar. Þess vegna erum við hingað komin." segir Philip Schneider frá Þýskalandi. Hópurinn hefur verið að skíða á Vestfjörðum undanfarið og sumir að koma hingað til lands í þriðja sinn. Philip segist kunna betur við snjóinn en rigninguna en Rokkhátíð Alþýðunnar, Aldrei fór ég suður fór fram um helgina við mikla hrifningu skíðamanna. „Besti dagurinn var þegar rokkhátíðin var haldin á Ísafirði. Við gátum notið tónlistarinnar á leiðinni upp brekkurnar og þegar við skíðuðum niður. Það var aðeins um 5 mínútna gangur með skíðabúnaðinn þangað sem rokkhátíðin var haldin. Allir voru mjög rólegir og við skemmtum okkur afar vel þar," segir Philip hæstánægður með upplifunina. En afhverju ákvað hópurinn að gista í tjaldi í þessu brjálaða veðri, en margir sátu veðurtepptir á Vestfjörðum um helgina. „Það var ekki vegna fjárskorts. Okkur var boðið að gista í húsunum en þá hefðum við þurft að taka niður tjöldin. Það er mjög þægilegt, hlýtt og kósí hér." segir Philip að lokum.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira