Virkjanalónin að fyllast og vorleysingarnar eftir 10. apríl 2012 20:30
Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er með besta móti þessa dagana og eru flest virkjanalón á góðri leið með að fyllast, þrátt fyrir að vorleysingar séu ekki enn hafnar á hálendinu. Þetta á við um öll miðlunarlónin, að sögn Guðmundar Björnssonar hjá Landsvirkjun, og nefnir hann sem dæmi að Hálslón standi nú 20 metrum hærra en á sama tíma í fyrra. Þá sé Þórsvatn átta og hálfum metra hærra en um þetta leyti í fyrra og komið í sömu stöðu og það var um mánaðamótin júní - júlí á síðasta ári. Aðeins vanti 170 sentímetra upp á að Þórisvatn fyllist. Í Fljótsdal sjá menn fram á góðan rekstur. Georg Pálsson, stöðvarstjóri Kárahnjúkavirkjunar, segir horfurnar mjög góðar fyrir þetta ár og vatnshæð í Hálslóni sé núna langt yfir meðalári. Hálslón er nú álíka hátt og það var um mánaðamótin júlí - ágúst í fyrra og það þrátt fyrir að vorleysingar teljist ekki enn hafnar á hálendinu. Georg segir að töluvert hafi snjóað í október og síðan hafi komið riginingar og hlýindi í nóvember og Hálslón þá fyllst aftur. Veðráttan hafi síðan reynst hagstæð. Gott vatnsrennsli er helsta forsenda tekna Landsvirkjunar sem í fyrra námu um 56 milljörðum króna. Stærsti hlutinn kemur frá Kárahnjúkavirkjun en miðað við meðalverð til stóriðju, sem gefið er upp í ársskýrslu, má ætla að stöðvarhús hennar í Fljótsdal hafi eitt og sér skilað sautján milljarða króna raforkusölutekjum á síðasta ári. Það jafngildir um einum og hálfum milljarði króna á mánuði og um fimmtíu milljónum á degi hverjum, verðmætin sem verða til í hverflum Kárahnjúkavirkjunar.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira