Viðskipti innlent

Pólitísk yfirlýsing hjá Evrópska fjárfestingarbankanum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við HÍ. Hann segir ákvörðun Evrópska fjárfestingarbankans vera vísbendingu um að bankinn telji það ekki útilokað að Grikkir yfirgefi evrusamstarfið.
Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við HÍ. Hann segir ákvörðun Evrópska fjárfestingarbankans vera vísbendingu um að bankinn telji það ekki útilokað að Grikkir yfirgefi evrusamstarfið.
„Þetta er svolítið pólitísk yfirlýsing, því þetta er ekki venjulegur einkabanki heldur alþjóðastofnun í eigu opinberra aðila. Það að þannig stofnun geri það er alvarlegra en ef einkabanki færi fram á slíka skilmála," segir Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði um þá ákvörðun Evrópska fjárfestingarbankans að fara fram á skilmála um drökmuna í lánasamningum við grísk fyrirtæki.

Svo virðist sem Evrópski fjárfestingarbankinn telji það ekki útilokað að Grikkland fari úr evrunni því bankinn hóf fyrir tveimur vikum að setja ákvæði í nýja lánasamninga við grísk fyrirtæki, sem heimila að endursemja um lánin verði gamli þjóðargjaldmiðill Grikkja, drakman, tekin upp á ný eða ef evrusvæðið sundrast.

Jafnframt eru ný ákvæði í lánasamningum um að samningarnir heyri undir breska löggjöf ef það verða óreglulegar greiðslur, eða vanskil á samningunum, en frá þessu er greint á fréttavef gríska dagblaðsins Ekathimerini.

Fyrsta ákvæði af þessu tagi var sett í lánasamning stærsta orkufyrirtækis Grikklands, PPC, sem vísaði málinu til fjármálaráðuneytis Grikklands. Af þessu tilefni hóf gríska fjármálaráðuneytið viðræður við Evrópska fjárfestingarbankann þegar lá fyrir að þetta ákvæði myndi ekki taka til þessa eina fyrirtækis heldur allra grískra fyrirtækja sem ættu viðskipti við bankann.

Heimildir gríska blaðsins herma að ákvæði um hugsanlega gjaldmiðlabreytingu verði tekin upp í lánasamningum allra ríkja sem fá fjárhagsaðstoð, þ.e Grikklands, Portúgals og Írlands og fleiri ríkja og muni í fyllingu tímans ná til allra evruríkjanna.

„Það verður eiginlega að túlka það þannig að þeir líti svo á að þetta sé ekki útilokað en það segir ekki til um hversu miklar líkur þeir telji að ein eða fleiri þjóðir hætti í evrusamstarfinu," segir Gylfi Magnússon.

„Það er svo sem eðlilegt í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið og þeirra sviptinga að fjármálastofnanir reyni að verja sig fyrir öllum hugsanlegum uppákomum, sama hversu líklegar eða ólíklegar þær eru. (...) Þetta er (samt) svolítið pólitísk yfirlýsing, því þetta er ekki venjulegur einkabanki heldur alþjóðastofnun í eigu opinberra aðila. Það að þannig stofnun geri það er alvarlegra en ef einkabanki færi fram á slíka skilmála."


Tengdar fréttir

Evrópski fjárfestingarbankinn vildi ákvæði um drökmuna í samninga

Svo virðist sem Evrópski fjárfestingarbankinn telji það ekki útilokað að Grikkland fari úr evrunni því bankinn hóf fyrir tveimur vikum að setja ákvæði í nýja lánasamninga við grísk fyrirtæki, sem heimila að endursemja um lánin verði gamli þjóðargjaldmiðill Grikkja, drakman, tekin upp á ný eða ef evrusvæðið sundrast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×