Viðskipti innlent

Mesti fjöldi kaupsamninga um fasteignir frá hruninu 2008

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 143. Hefur fjöldi samninga á einni viku ekki verið meiri frá því fyrir hrunið 2008.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að af þessum 143 samningum voru 105 samningar um eignir í fjölbýli, 29 samningar um sérbýli og 9 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var tæplega 4,5 milljarðar króna sem er um einum milljarði meira en nemur vikuveltunni að meðaltali undanfarna þrjá mánuði. Meðalupphæð á samning 31,2 milljónir króna sem er um 700.000 kr. hærra en nemur meðalvikuveltunni undanfarna þrjá mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×