Algjör Sveppi vinsælasta íslenska myndin - bíógestum fækkar á milli ára 20. janúar 2012 11:58 Algjör Sveppi og töfraskápurinn naut mikilla vinsælda.
Bíógestum fækkar hér á landi um tæp 3 prósent á milli ára samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Heildartekjur fara hinsvegar upp um eitt prósent miðað við árið 2010. Árið 2011 voru seldir ein og hálf milljón bíómiða yfir rétt tæplega einn og hálfan milljarð króna í kvikmyndahúsum á Íslandi. Tekjuhæsta myndin hér á landi var Harry Potter and the Deathly Hollows: Part 2. Hún þénaði alls 63 milljónir króna. 53 þúsund sáu myndina. Tíu tekjuhæstu myndirnar hér á landi eru erlendar. Tekjuhæsta íslenska myndin, sem situr í ellefta sæti, er ævintýramyndin Algjör Sveppi og töfraskápurinn. Myndin þénaði 30 milljónir og þrjátíu þúsund nutu ævintýrisins. Næst kemur Okkar eigin Osló sem þénaði rétt rúmlega 29 milljónir. Talsvert færri sáu þá mynd en ævintýramynd Sveppa, eða tæplega 24 þúsund. Í tilkynningu frá Smáís segir að það hafi verið mjög misjafnt hvernig tekjur voru í samanburð við 2010 í heiminum og má þar nefna að í Bandaríkjunum lækkuðu heildartekjur niður í það lægsta í 16 ár eða um 3.8% frá 2010 og aðsókn minnkaði einnig um 4.7%, en í Bretlandi hækkuðu heildartekjur um 4.5% á meðan Kína var með 30% hækkun, sem er til marks um auknar vinsældir kvikmyndahúsa þar í landi. Meðalverð á bíómiða á Íslandi var 989.kr á síðasta ári sem er það lægsta sem gerist á meðal nágrannaþjóða okkar. Sem dæmi er meðalverð í Bretlandi 1.120.kr, miðað við gengið í dag, og í Danmörku 1.605.kr enn Bandaríkjamenn njóta svipaðar kjara og íslendingar í bíó þar sem meðalverð á bíómiða þar er 987.kr. Árið einkennist af því hvað framhaldsmyndir eru sterkar og til marks um það eru 5 af 10 efstu myndum ársins framhaldsmyndir, þar af 3 efstu myndirnar. Síðasta ævintýramyndin um galdrastrákinn Harry Potter trónir efst á toppnum, Strumparnir er vinsælasta barnamyndin og þrumuguðinn Þór er okkur íslendingum hugleikinn, því tvær myndir um hann eru inná topp 20 listanum, Hollywood stórmyndin Thor frá Marvel og fyrsta íslenska teiknimyndin í 3D, Þór. Fjórar íslenskar myndir ná inná topp 20 og er þar nýjasta ævintýrið með Sveppa og félögum á toppnum þetta árið, fast á hæla hennar koma Okkar eigin Osló, Þór og svo Borgríki en í heildina voru íslenskar myndir 9.3% af heildartekjum á markaðnum sem er minna en 2010 þegar hlutdeild íslenskra mynda var tæplega 11%. Einnig má benda á að Klovn - the Movie er eina myndin sem kemst inná topplistann, sem ekki er íslensk eða á enskri tungu. Hérna er listi yfir 20 stærstu myndir ársins 2011 á Íslandi þar sem eru 13 amerískar myndir, 4 íslenskar, 2 breskar og ein dönsk . Nr. Titill Dreifingaraðili Heildartekjur Aðsókn 1 Harry Potter and the Deathly Hollows: Part 2 Samfilm 63.119.415 kr. 53.162 2 Pirates of the Caribbean: on Stranger Tides Samfilm 43.051.290 kr. 36.646 3 Hangover: Part 2 Samfilm 41.162.665 kr. 40.289 * 4 Klovn - the Movie Samfilm 40.914.825 kr. 41.124 5 Ævintýri Tinna (The Adventures of Tintin) Sena 40.323.902 kr. 36.423 6 Transformer 3: Dark of the Moon Samfilm 33.686.355 kr. 27.798 7 Bridesmaids Myndform 31.879.223 kr. 32.865 8 Smurfs Sena 30.801.082 kr. 33.277 9 Kung Fu Panda 2 Samfilm 30.320.964 kr. 31.326 10 Thor Myndform 30.093.615 kr. 25.385 11 Algjör Sveppi og Töfraskápurinn Samfilm 29.846.180 kr. 30.602 12 Okkar eigin Osló Sena 29.238.064 kr. 23.892 13 The King´s Speech Samfilm 23.711.540 kr. 24.682 14 Captain America: The First Avenger 3D Myndform 23.381.200 kr. 19.787 15 Johnny English Reborn Myndform 22.712.929 kr. 24.269 16 Fast Five Myndform 22.432.574 kr. 22.514 17 Horrible Bosses Samfilm 22.341.970 kr. 22.003 18 Þór Sena 22.225.405 kr. 24.044 19 Cars 2 Samfilm 20.898.260 kr. 23.041 20 Borgríki Myndform 19.330.675 kr. 16.465
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira