Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður yfirtók 500 íbúðir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólíklegt er að Íbúðalánasjóður selji margar íbúðir í einu.
Ólíklegt er að Íbúðalánasjóður selji margar íbúðir í einu. mynd/ hag
Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs fjölgaði um 443 á fyrstu sex mánuðum ársins, en þær voru 2049 í júnílok. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Íbúðalánasjóðs.

Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka segir að þessi mikla aukning sé tilkomin vegna greiðsluerfiðleika lántakenda hjá sjóðnum en á fyrri helmingi ársins leysti sjóðurinn til sín 501 fasteign og seldi 58 fasteignir. Fasteignir í útleigu í lok júní voru 846 eða sem nemur 41% af heildarfjölda fasteigna sjóðsins og námu leigutekjur af fasteignunum samtals 449,6 milljónir króna á fyrri árshelmingi. Árið 2010 leysti Íbúðalánasjóður til sín 854 fasteignir til fullnustu krafna og á síðasta ári voru 691 fasteignir innleystar. Íbúðalánasjóður á því um það bil 1,6% af öllum íbúðum í landinu.

Greining Íslandsbanka segir ljóst að svo mikið framboð fasteigna gæti haft áhrif á íbúðaverð til lækkunar ef það yrði losað inn á markaðinn á stuttum tíma. Það er hinsvegar ólíklegt að það gerist en Íbúðalánasjóður hefur farið sér mjög hægt í þessum efnum. Á síðasta ári seldi sjóðurinn 154 íbúðir og á árinu 2010 voru 132 íbúðir seldar. Það sem af er þessu ári hefur sjóðurinn selt 58 íbúðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×