Spennandi nýjungar í boði 11. janúar 2012 16:00 Nissan Qashqai
Nú í febrúar er væntanlegur til landsins nýr og spennandi fjórhjóladrifsbíll frá Subaru. Þetta er tímamótabíll sem er enn ein skrautfjöðrin í hatt Subaru sem er þekkt fyrir mikil gæði og áreiðanleika,“ segir Rúnar Bridde, sölustjóri Subaru og Nissan hjá Ingvari Helgasyni. Bíllinn sem um ræðir ber nafnið XV og flokkast sem eins konar sportjeppi. „Subaru XV er mjög umhverfisvænn og er CO2 útblástur ekki nema 153 g/km sem þykir mjög lágt fyrir bíl með 2,0 lítra bensínvél, sjálfskiptur og fjórhjóladrifinn,“ segir Rúnar og bætir við að eldsneytiseyðsla sé einkar lág, eða aðeins 6,6 lítrar í blönduðum akstri. „Subaru XV verður boðinn hér á Íslandi með ríkulegum búnaði og má sem dæmi nefna bakkmyndavél, VDC-skriðvörn, 17“ álfelgur, fullkominni og nýrri CVT stiglausri skiptingu sem lágmarkar eldsneytiseyðslu, Bluetooth-símabúnaði og svo mætti lengi telja,“ telur Rúnar upp. Hann segir athygli vekja hve veghæð bílsins sé mikil, en hún er 22 cm, sem sé það mesta sem þekkist í þessum flokki bíla. „Það er því ljóst að Subaru XV er eins og sérsniðinn fyrir íslenskar aðstæður,“ segir hann. Áætlað söluverð á Subaru XV, ríkulega búnum, er um 5,6 milljónir.Spennandi dísilvélar Von er á nýjum og mjög spennandi dísilvélum í Nissan Qashqai nú í febrúar og mars á þessu ári. „Stærsta nýjungin frá Nissan á þessu ári er gríðarlega öflug og sparneytin 1,6 lítra dísilvél sem skilar 130 hestöflum og 320 NM í togi en það gerir hana að kraftmestu 1,6 lítra dísilvél í heiminum,“ segir Rúnar og bætir við að þrátt fyrir þetta sé vélin einkar umhverfisvæn. CO2 útblástur sé ekki nema 135g og eldsneytiseyðslan einungis 5,1 lítri í blönduðum akstri. „Það er sérlega lágt miðað við fjórhjóladrifinn jeppling.“ Qashqai verður í boði með þessa vél í SE útfærslu sem er mjög ríkulega búinn bíll. „Rúsínan í pylsuendanum er svo verðið en beinskiptur Nissan Qashqai SE 1,6 dCI mun kosta aðeins 4.990.000 krónur. Í lok mars verður kynntur Nissan Qashqai með nýrri og endurbættri 2,0 lítra dísilvél í sjálfskiptri SE útfærslu. Sem fyrr er verðið hagstætt, 5.990.000 krónur sem er hagstæðasta verð á sjálfskiptum dísiljepplingi í dag að sögn Rúnars. Meðal staðalbúnaðar í Nissan Qashqai má nefna bakkskynjara, handfrjálsan Bluetooth-símabúnað, litaðar afturrúður, stillanlegt fjórhjóladrif, tvískipta sjálfvirka tölvustýrða loftkælingu og margt fleira.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira