Tim Ward flytur málið fyrir Íslendinga Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. janúar 2012 09:36
Utanríkisráðherra kynnti ríkisstjórninni í gær, að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd, ákvörðun sína um að ráða Tim Ward til að vera aðalmálflytjandi í samningsbrotamálinu sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur höfðað fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave málsins. Tim Ward er starfandi lögmaður við lögmannsstofuna Monckton Chambers í London en hún er ein hin sterkasta á sviði Evrópuréttar. Tim Ward fékk réttindi til málflutnings árið 1995 og hefur nýverið öðlast hin bresku Queen's Council réttindi, en um tíundi hluti þeirra sem eru með málflutningsréttindi í Bretlandi er veitt sérstök heimild til að bera slíkan titil. Tim Ward hefur flutt mörg þekkt mál, þar af um 50 fyrir Evrópudómstólnum. Mál sem hann hefur flutt spanna vítt svið en hafa m.a. varðað jafnræðisregluna og mismunun og skaðabótaskyldu ríkja vegna vanrækslu á að innleiða tilskipanir ESB (svokölluð Francovich regla svipuð og dæmd var í hinu svokallaða Erlu Maríu-máli). Hann var tilnefndur sem lögmaður ársins árið 2008 í Bretlandi og er metinn einn af bestu lögmönnum á þeim sviðum sem máli skiptir. Við undirbúning málsins var í samræmi við stefnumörkun ríkisstjórnarinnar haft samráð við fjölda aðila sem hafa ríka reynslu hafa af rekstri dómsmála, innlenda sem erlenda, auk þess sem utanríkisráðherra átti fundi með fulltrúum hreyfinga sem hafa beitt sér gegn þeim samningum sem gerðir hafa verið um lyktir málsins.
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira