Hagnaðurinn fjórfalt meiri en á síðasta ári 11. ágúst 2012 05:15 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir afkomubætinguna vera að stóru leyti tilkomna vegna mikillar fjölgunar á farþegum milli Evrópu og Norður-Ameríku.fréttablaðið/vilhelm
Icelandair Group hagnaðist um 1,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er rúmlega fjórum sinnum meiri hagnaður en félagið skilaði á sama tíma í fyrra, en hagnaður þess frá byrjun apríl til loka júnímánaðar 2011 var 400 milljónir króna á gengi dagsins í dag. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri félagsins sem birt var í gær. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta var tæplega 3,5 milljarðar króna og jókst um 1,4 milljarða króna á milli ára. Þegar horft er á fyrstu sex mánuði ársins hefur Icelandair Group hagnast um 135 milljónir króna, en félagið skilar vanalega tapi á fyrsta ársfjórðungi enda markaðir þess í lægð á þeim tíma. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2011 tapaði Icelandair Group hins vegar um 695 milljónum króna. Því er um 730 milljóna króna viðsnúning að ræða frá síðasta ári. Í tilkynningu frá Icelandair Group er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra félagsins, að afkoma þess á öðrum ársfjórðungi hafi verið góð og talsverð betri en á sama tímabili í fyrra. „Arðbær innri vöxtur einkenndi fjórðunginn og þá sérstaklega í millilandaflugi félagsins. Farþegum fjölgaði mikið og einkum á markaðinum milli Evrópu og Norður-Ameríku. Einnig var töluverður vöxtur á ferðamannamarkaðinum til Íslands sem hefur jákvæð áhrif á rekstur samstæðunnar og alla íslenska ferðaþjónustu.“ Icelandair Group er skráð á hlutabréfamarkað. Stærstu eigendur félagsins eru Framtakssjóður Íslands (19 prósent), Lífeyrissjóður verslunarmanna (14,3 prósent) og Íslandsbanki (11,7 prósent). - þsj
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira