Mæta hallarekstri með ólöglegum yfirdráttarlánum 4. september 2012 10:42 Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Ríkisendurskoðun segir að fjórar af heilbrigðisstofnum landsins hafi mætt hallarekstri sínum með yfirdráttarlánum í bönkum en slíkt sé ólöglegt. Heilbrigðisstofnun Austurlands hafi þannig verið með 83 milljóna króna yfirdrátt á bankareikningi sínum í lok síðasta árs. Fjallað er um málið á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Þar segir að vinna þurfi á uppsöfnuðum halla Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) og tryggja að rekstur hennar rúmist innan fjárheimilda. Þá verður velferðarráðuneytið að sjá til þess að HSA og aðrar stofnanir sem undir það heyra fjármagni ekki rekstur sinn með yfirdráttarlánum, enda er slíkt með öllu óheimilt samkvæmt reglum. HSA varð til árið 1999 við sameiningu allra heilbrigðisstofnana á Austurlandi. Í febrúar árið 2009 beindi Ríkisendurskoðun nokkrum ábendingum til HSA og heilbrigðisráðuneytis (nú velferðarráðuneyti). Ábendingarnar lutu m.a. að fjárreiðum HSA, undirbúningsvinnu vegna sameiningar heilbrigðisstofnana og stefnumörkun og árangursstjórnun HSA. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að nú, rúmlega þremur árum síðar, hefur verið brugðist við flestum ábendinganna með þeim hætti að ekki þykir þörf á að árétta þær. Eftir stendur að stofnunin hefur verið rekin með halla undanfarin ár. Uppsafnaður halli nam 113 milljónum króna í lok síðasta árs og skammtímaskuldir 163 milljónum króna, þar af nam yfirdráttur á bankareikningum 82 milljónum króna. Fram kemur að HSA er ekki eina heilbrigðisstofnunin á landsbyggðinni sem glímt hefur við rekstrarerfiðleika undanfarin ár. Af samtals 11 stofnunum sem nefndar eru í skýrslunni voru 7 reknar með halla árið 2011 og þar af gripu 4 til þess ráðs að taka yfirdráttarlán í banka til að fjármagna rekstur sinn. Að mati Ríkisendurskoðunar er verulegt áhyggjuefni hversu illa heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni hefur gengið að halda rekstri sínum innan þess ramma sem Alþingi setur. Í skýrslunni er minnt á að samkvæmt reglum um framkvæmd fjárlaga er ríkisstofnunum óheimilt að efna til útgjalda umfram fjárheimildir. Ráðuneytum ber að hafa reglubundið eftirlit með útgjöldum stofnana sinna og grípa til aðgerða ef þau fara meira en 4% fram úr áætlun. Þá er stofnunum með öllu óheimilt að fjármagna rekstur sinn með yfirdrætti á bankareikningi, samkvæmt reglum um láns- og reikningsviðskipti ríkisstofnana í A-hluta ríkissjóðs. Ríkisendurskoðun hvetur HSA til vinna á uppsöfnuðum halla sínum, gera upp skammtímaskuldir og sporna við frekari hallarekstri. Þá er velferðarráðuneytið hvatt til að efla eftirlit sitt með fjárreiðum stofnunarinnar og tryggja að rekstur hennar rúmist innan fjárheimilda. Enn fremur minnir Ríkisendurskoðun á að stofnanir mega ekki fjármagna rekstur sinn með yfirdrætti á bankareikningi. Velferðarráðuneytinu ber að tryggja að HSA og aðrar stofnanir sem heyra undir ráðuneytið virði þessa reglu.
Mest lesið Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira