Viðskipti innlent

SA segir að fjölga þurfi nemendum í raungreinum

Fjölga þarf útskrifuðu fólki úr verkfræði, tækni- og raunvísindanámi á Íslandi. Nú þegar er gífurleg eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar á háskólastigi.

Fjallað er um málið á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins (SA). Þar segir að mikil tækifæri felist í þeim hluta atvinnulífsins sem er kallaður hátæknigeirinn. Hér er m.a. um að ræða fyrirtæki sem tengjast tölvu- og hugbúnaðargeiranum, heilbrigðistækni, lífvísindum, umhverfistækni og upplýsingatækni.

Takist skólakerfinu ekki að svara þessari eftirspurn er hætta á að fyrirtækin muni enn frekar en nú byggjast upp að mestu erlendis en Ísland stendur aftarlega í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að tæknimenntun fólks á aldrinum 25-35 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×