Gervigras sem kostaði tugmilljónir er gallað 17. apríl 2012 07:00 Gervigrasið í Reykjaneshöll bókstaflega spænist upp þegar það er þrifið og er á öruggri leið með að hverfa þaðan af gólfinu. Myndir/VSÓ
Skipta þarf út nýlegu gervigrasi í íþróttahöllunum í Reykjanesbæ og Grindavík. Grasið losnar af gólfmottunum. Framleiðandinn viðurkennir galla og verið er að semja um ný gólf. Þau kostuðu yfir 40 milljónir er þau voru keypt fyrir hrun. „Ef þetta heldur svona áfram endar það náttúrlega með því að það verður lítið eftir af grasi,“ segir Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar. Gervigrasið í Reykjaneshöll er á síðasta snúningi þrátt fyrir að vera aðeins fjögurra ára gamalt. Gervigrasið í Reykjaneshöll var endurnýjað fyrir rúmum fjórum árum af þýsku fyrirtæki. Á sama tíma var sams konar gervigras sett í nýju fjölnotahöllina Hópið í Grindavík. Fljótlega kom í ljós að gólfin í báðum húsum eru gölluð, bæði krumpuð og reytt. „Það er eins og grasið verði of þurrt og það brotnar,“ segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík. „Framleiðandinn hefur viðurkennt að þetta sé galli og ætlar að skipta gólfinu út en vill fá greitt fyrir afnotin í þau þrjú ár sem við höfum notað gólfið. Við höfum sagt að það sé mál á milli framleiðandans og kaupandans á gólfinu – sem er ekki við heldur verktakinn sem við keyptum húsið af.“ Reykjanesbær keypti sitt gólf beint af þýska framleiðandanum og greiddi fyrir það 22 milljónir króna. Gólfið í Grindavík mun hafa kostað um 20 milljónir. Báðar þessar upphæðir eru frá því fyrir hrun þannig að tjónið er jafnvel tvöfalt hærra í krónum talið og því samtals yfir 80 milljónir króna. „Þetta er algjört mánudagsgras,“ segir Stefán Bjarkason. „Festingarnar undir mottunni eru límdar og saumaðar og það er eins og límið hafi ekki verið nógu gott þannig að það fór fljótlega að bera á því að grasið raknaði bara upp og losnaði. Þannig að þegar við erum að þrífa koma heilu pokarnir upp af grasstráum. Þeir hafa komið og lagað þetta okkur að kostnaðarlausu en við erum ekki sátt við að það sé alltaf verið að stoppa upp í götin.“ Þýski framleiðandinn viðurkennir galla í báðum gólfunum. Á þeim er fimm ára ábyrgð. Til stendur að skipta þeim báðum út í sumar þegar aðilar hafa náð samkomulagi. Stefán segir að líklega muni Reykjanesbær bera eitthvert tjón. „Þá er bara að taka því, það verður að skipta um gras,“ segir Stefán sem undirstrikar þó eins og Róbert í Grindavík að engin hætta hafi skapast vegna ástands grassins og það hafi ekki takmarkað notkun hallanna. Í Reykjaneshöllinni er gólfið fjögur þúsund fermetrar. Þjóðverjarnir sjá ekki fyrir sér að taka ónýta grasið með sér heim. „Þeir vilja náttúrlega losna við förgunina og eru búnir að bjóða okkur grasið til notkunar úti en ég veit ekki hvort það mundi endast þar,“ segir Stefán Bjarkason.gar@frettabladid.is
Mest lesið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Sjá meira