Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing sýknað af kröfum Smákrana Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. maí 2012 16:14
Hæstiréttur sýknaði í dag fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu af kröfum Smákrana vegna fjármögnunarleigusamnings sem gerður var fyrir bankahrun. Smákranar héldu því fram að gengistrygging lánssamningsins væri ólögleg og stefndi því Lýsingu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómur þar féll Smákrönum í hag en Lýsing undi ekki dómsniðurstöðunni og áfrýjaði því málinu til Hæstaréttar. Hæstiréttur hafði áður dæmt að fjármögnunarleigusamningar sem Kraftvélaleigan gerði við Glitni banka í aðdraganda bankahrunsins hafi verið ólöglegir samningar. Lýsing hélt því aftur á móti fram að þeir samningar sem fyrirtækið gerði við sína viðskiptavini væru ekki sambærilegir þeim samningum sem Glitnir gerði við sína viðskiptavini. Umræddir fjármögnunarleigusamningar voru gerðir til að fjármagna kaup fyrirtækja á atvinnutækjum. Hæstiréttur segir í dómi sínum í dag að samningurinn sem þetta mál varði sé í ýmsum atriðum frábrugðinn samningnum sem fjallað var um í dómi Hæstaréttar í máli Kraftvélaleigunnar gegn Glitni. Þannig séu stöðluð ákvæði samningsins í þessu máli skýr og eiga eingöngu við um fjármögnunarleigusamninga. Þá sé í samningi málsaðila fjallað um leigu og er áfrýjandi þar ítrekað nefndur leigusali.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira