Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí er 398,1 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,03% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 378,4 stig og lækkaði um 0,08% frá apríl
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,4% og vísitalan án húsnæðis um 5,5%. Tólf mánaða verðbólga lækkar um eitt prósentustig á milli mánaða. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% sem jafngildir 7,5% verðbólgu á ári (8,1% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 3,9% (vísitöluáhrif -0,24%) en verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 7,6% (0,12%).
Frá þessu var greint á vef Hagstofu Íslands. Sjá nánar hér.
Verðbólgan 5,4 prósent - lækkar um eitt prósentustig
