Viðskipti innlent

Rífandi gangur hjá Icelandair í ársbyrjun

Fjöldi farþega hjá Icelandair jókst um 13% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.. Í tilkynningu segir að sætanýtingin í janúar hefur aldrei verið hærri í þeim mánuði en hún var rúm 69% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára.

Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum félagsins en þó mest á markaðinum til Íslands þar sem aukningin nam 28%.

Flugfélag Íslands flutti tæplega 24 þúsund farþega í janúar. Sætanýtingin nam 64,9% og lækkaði um 0,4 prósentustig á milli ára.

Fraktflutningar jukust um 20% á milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×