"Kynnt sú fyrirætlan stjórnar FME að segja þér upp störfum" 22. febrúar 2012 12:54 Gunnar Þ. Andersen. Stjórn FME kynnti honum uppsögn frá og með næstu mánaðarmótum í boðsendu bréfi sl. föstudag, en virðist nú vera að bakka með þá ákvörðun.
Í bréfi frá stjórn Fjármálaeftirlitsins sem Gunnar Þ. Andersen forstjóri stofnunarinnar fékk boðsent til sín sl. föstudag segir: „(E)r þér með þessu bréfi kynnt sú fyrirætlan stjórnar FME að segja þér upp störfum sem forstjora stofnunarinnar. Uppsögnin er með sex mánaða fyrirvara frá næstu mánaðamótum." Svo segir í bréfinu, sem aldrei hefur birst áður, að það sé jafnframt fyrirætlan stjórnar að lýsa því yfir að „ekki verði óskað eftir vinnuframlagi þínu á uppsagnartímanum." Bréfið er undirritað af Aðalsteini Leifssyni, stjórnarformanni FME og stjórnarmönnunum Ingibjörgu Þorsteinsdóttur og Arnóri Sighvatssyni, aðstoðarseðlabankastjóra. Orðalag í bréfinu er athyglisvert fyrir þær sakir að annað hljóð virtist vera komið í strokkinn sl. sunnudagskvöld, því á mánudag sagði Aðalsteinn Leifsson í samtali við Fréttablaðið: „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að segja Gunnari upp störfum og ég veit ekki hvort sú ákvörðun verði tekin."Segja að Gunnar hafi villt um fyrir stofnuninni Í boðsenda bréfinu kemur fram að grundvöllur hinnar fyrirhuguðu ákvörðunar sé að stjórn telji ljóst að forsendur fyrir áframhaldandi ráðningu Gunnars séu brostnar. Síðan segir: „Ljóst er orðið af því sem fram hefur komið af ítarlegum rannsóknum á aðkomu þinni af (sic) málefnum Landsbankans á árinu 2001 að þú hefur að mati stjórnar FME átt þátt í aðgerðum sem voru til þess fallnar að villa um fyrir stofnuninni við eftirlit hennar með málefnum bankans." Þarna er stjórnin að vitna til bréfs sem sent FME árið 2001, þegar Gunnar var framkvæmdastjóri alþjóða- og fjármálasviðs Landsbankans, eins og komið hefur fram, en í álitsgerð Ástráðs Haraldssonar og Ásbjarnar Björnssonar, segir að „í ljósi þekkingar sinnar og stöðu innan Landsbankans hefði Gunnar Þ. Andersen mátt vita að svar bankans var ófullnægjandi og beinlínis villandi." Í álitsgerð sinni segja þeir Ástráður og Ásbjörn hins vegar jafnframt: „Við tökum undir þá niðurstöðu Andra Árnasonar að gögn málsins beri ekki með sér neitt sem bendi til þess að Gunnar Þ. Andersen hafi brotið lög með aðkomu sinni að skipulagningu á aflandsstarfsemi Landsbankans og stjórnarsetu í félögunum NBI Holdings Ltd. og LB Hold-ing Ltd. (...) „Ástæðulaust er því að draga í efa niðurstöðu Andra Árnasonar um hæfi Gunnars Þ. Andersen að lögum til að gegna skyldum sem forstjóri Fjármálaeftirlitsins á grundvelli þessara gagna." Síðan segir í álitsgerð þeirra að engu að síður sé það mat þeirra að fram hafi komið upplýsingar um atvik sem séu til þess fallnar að kasta rýrð á hæfi Gunnars til að gegna starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins.
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira