Ráðherra leggur fram frumvarp um smálán að nýju Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. ágúst 2012 13:07
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, ætlar að leggja fram að nýju, í haust, frumvarp vegna starfsemi smálánafyrirtækja. Frumvarpið var lagt fram fyrir þinghlé í vor en ekki náðist að afgreiða það vegna tímaskorts. Efni frumvarpsins felur ekki í sér bann við smálánum, heldur er verið að setja starfsemi smálánafyrirtækja þrengri skorður. Fram kemur í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu að veiting smálána falli ekki undir ákvæði núgildandi laga um neytendalán, en í þeim er ákvæði um að lánssamningar sem gilda skemmri tíma en þrjá mánuði séu undanskildir gildissviði laganna. Í frumvarpi til nýrra laga um neytendalán er lagt til að ákvæði þess gildi um öll neytendalán óháð fjárhæð, þ.m.t. smálán. Frumvarpið tekur tillit til laga og reglna sem gilda á EES svæðinu. Væntanlegt frumvarp mun einkum taka á smálánum með tvennum hætt, eða á þann hátt sem lýtur að upplýsingaskyldu og hins vegar að lánshæfis- og greiðslumati: Í öllum auglýsingum, sem varða lánssamninga þar sem gefnar eru upplýsingar um vexti eða tölur varðandi kostnað neytandans af láninu, verður gerð krafa um að fram komi staðlaðar upplýsingar, s.s. um útlánsvexti, árlega hlutfallstölu kostnaðar, lánsfjárhæð og lengd lánssamnings. Fyrir og við samningsgerðina sjálfa eru síðan enn ítarlegri upplýsingakröfur. Neytendur ættu því að vera vel upplýstir um þau kjör sem lánveitendur bjóða. Frumvarpið kveður á um að mat á lánshæfi neytanda skuli fara fram áður en lánssamningur er gerður: (i) Lánveitandi skal áður en lánssamningur er gerður meta lánshæfi lántaka.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira