Allt fyrirtækið í bið vegna rammaáætlunar 10. mars 2012 20:30 Guðmundur Valsson
Ráðamenn Suðurorku eru sigldir í strand með undirbúning Búlandsvirkjunar í Skaftá sökum þess að rammaáætlun er föst í ágreiningi innan stjórnarflokkanna. Eftir að fallið var frá hugmyndum um að beisla orku Skaftár með því að veita ánni í gegnum Langasjó hefur svokölluð Búlandsvirkjun orðið ofaná og búið að samþykkja hana inn á aðalskipulag Skaftárhrepps, sem umhverfisráðherra hefur staðfest. Fyrirtækið Suðurorka, sem er í eigu HS Orku og Íslenskrar orkuvirkjunar, hefur í þrjú ár undirbúið þarna 150 megavatta virkjun. Guðmundur Valsson, framkvæmdastjóri Suðurorku, segir í viðtali við Stöð 2 að búið sé að leggja hundruð milljóna króna í rannsóknir á þessum virkjunarkosti og framundan sé að leggja hundrað milljónir króna í mat á umhverfisáhrifum. Rammaáætlun stoppi hins vegar allt. Búlandsvirkjun yrði rétt ofan efstu bæja í Skaftártungu, neðan Hólaskjóls. Skaftá yrði veitt um göng í nýtt lón á Þorvaldsaurum við Réttarfell, þar sem stöðvarhúsið yrði, og hluta af rennsli Tungufljóts yrði náð með tveimur stíflum, en vatninu síðan skilað aftur um göng til Skaftár á móts við bæinn Búland. Búlandsvirkjun hafnaði í biðflokki rammáætlunar sem Suðurorkumenn segjast ósáttir við enda sé hún mikið rannsökuð. Guðmundur Valsson segir að 27 sérfræðiskýrslur liggi fyrir um virkjunina og hún hafi fengið fína einkunn í fyrsta áfanga rammaáætlunar. Suðurorka er að því leyti ólík öðrum orkufyrirtækjum að öll starfsemin snýr að Búlandsvirkjun. „Við erum bara með einn kost. Ef hann er í bið er allt fyrirtækið í bið," segir framkvæmdastjóri Suðurorku.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira