Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 118 milljarða í mars

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 118 milljarða króna í marsmánuði. Munar þar mestu um ákvörðun bankans og ríkisstjórnarinnar að endurgreiða hluta af lánum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hinna Norðurlandanna áður en að gjalddaga þeirra kom.

Í hagtölum Seðlabankans segir að gjaldeyrisforðinn sé nú 977 milljarðar króna. Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtímaskuldum, nemur 513 milljörðum kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×