Gistinóttum fjölgaði um 8,3% í fyrra 20. apríl 2012 09:07
Gistinætur voru rúmar 3,2 milljónir hér á landi árið 2011 og fjölgaði um 8,3% frá fyrra ári. Erlendir ríkisborgarar gistu flestar nætur, þ.e. 75% af heildarfjölda gistinátta, og fjölgaði um 14% milli ára. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hinsvegar um 6%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að eins og mörg undanfarin ár gistu Þjóðverjar hér flestar nætur, þá Bretar og svo Bandaríkjamenn. Gistinóttum Bandaríkjamanna fjölgaði þó hlutfallslega mest milli ára eða um tæp 64%. Næstmest fjölgaði gistinóttum Asíubúa annarra en Japana og Kínverja (51%), þá Kanadamanna (50%) og loks Kínverja (45%). Gistinóttum Austurríkismanna fækkaði hlutfallslega mest eða um 22%, Dana um 5% og Belga 4%. Flestar gistinætur voru á hótelum og gistiheimilum (70%), á tjaldsvæðum 15% og 6% á farfuglaheimilum. Gistinóttum fjölgaði milli ára á öllum tegundum gististaða nema svefnpokagististöðum og tjaldsvæðum. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, en einnig varð nokkur fjölgun á Norðurlandi vestra, Suðurlandi og Vesturlandi. Á Austurlandi var fjöldi gistinátta svipaður milli ára. Gistinóttum fækkaði hins vegar á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira