Atvinnuleysið var 7,1% að meðaltali í fyrra 20. febrúar 2012 09:07
Í fyrra voru 180.000 á vinnumarkaði eða 80,4% atvinnuþátttaka. Fjöldi starfandi var 167.300 hlutfall þeirra af vinnuafli var 74,7%. Á árinu voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,1% vinnuaflsins. Fjallað er um málið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að atvinnuleysið sé því nokkru lægra en árið 2010 þegar það mældist hæst, eða 7,6% og fækkaði atvinnulausum um 1.000 manns. Árið 2011 var atvinnuleysi að meðaltali 9% í Reykjavík, 7% í nágrenni Reykjavíkur og 5% utan höfuðborgarsvæðisins. Atvinnuleysi mældist 7,8% hjá körlum og 6,2% hjá konum. Af þeim sem voru atvinnulausir árið 2011 voru að jafnaði 2.400 manns búnir að vera atvinnulausir í 1-2 mánuði eða 19,2% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 2.800 manns verið atvinnulausir í 1-2 mánuði árið 2010 eða 20,8% atvinnulausra. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Árið 2011 höfðu um 3.400 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 26,5% atvinnulausra. Árið 2010 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 2.800 manns eða 20,3% atvinnulausra. Árið 2011 voru 1,4% af þeim sem voru á vinnumarkaði atvinnulausir í 1-2 mánuði en 1,6% árið 2010. Langtímaatvinnulausir voru 1,9% vinnuaflsins árið 2011 samanborið við 1,5% árið 2010. Á árinu 2011 var meðalfjöldi vinnustunda á viku 40 klukkustundir samanborið við 39,5 árið 2010. Þegar litið er á þróun vinnustunda hjá körlum frá árinu 1991 til 2011 má sjá að vinnustundum þeirra hefur fækkað nokkuð eða úr 51,3 klukkustund í 44,1. Á sama tímabili hafa vinnustundir kvenna verið tiltölulega stöðugar eða í kringum 35 klukkustundir. Vinnustundir kvenna árið 2011 voru 35,4.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira