Samkeppniseftirlitið skoðar kaupin á hlut í Verdis 20. febrúar 2012 14:20 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið ætlar að taka að nýju til athugunar kaup Landsbankans á eignarhlut í fyrirtækinu Verdis. Verdis hét áður Arion verðbréfavarsla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Samkeppniseftirlitsins vegna málsins. Samkeppniseftirlitið hafði áður ógilt kaup Landsbankans á hlut í Verdis, og taldi samrunann raska samkeppni á markaði fyrir verðbréfaumsýslu með alvarlegum hætti. Ákvörðunin var kærð og 16. febrúar var hún ógilt af Samkeppniseftirlitinu. Tilkynning Samkeppniseftirlitsins vegna málsins er eftirfarandi: „Áfrýjunarnefnd leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að taka að nýju til athugunar hvort unnt sé að setja kaupum Landsbankans á eignarhlut í Verdis skilyrði Með ákvörðun nr. 34/2011 ógilti Samkeppniseftirlitið kaup Landsbankans hf. á eignarhlut í Verdis hf. (áður Arion verðbréfavarsla). Í samrunanum fólst m.a. að Landsbankinn og Arion banki færu saman með yfirráð í Verdis sem er ráðandi félag á markaði fyrir verðbréfaumsýslu. Var samruninn talinn raska samkeppni með alvarlegum hætti. Samrunaaðilar kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Með úrskurði dags. 16. febrúar sl., hefur áfrýjunarnefndin ógilt ákvörðunina. Áfrýjunarnefnd tekur ekki afstöðu til efnisþátta málsins í úrskurði sínum en leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að taka að nýju til athugunar hvort unnt sé að setja samrunanum skilyrði. Kemst áfrýjunarnefndin að þeirri niðurstöðu að áfrýjendur hafi haft réttmæta ástæðu til að ætla að þeirri meðferð sem hafin var undir rekstri málsins til þess að freista þess að setja samrunanum viðunandi skilyrði hafi ekki verið lokið er ákvörðunin var tekin. Lagt er fyrir Samkeppniseftirlitið að veita áfrýjendum stuttan frest til að setja fram endanlegar tillögur um skilyrði fyrir samrunanum af sinni hálfu á grundvelli þeirra markmiða sem Samkeppniseftirlitið telur að verði að nást til að fullnægja þeim samkeppniskröfum sem gerðar eru. Fyrir Samkeppniseftirlitinu liggur því að taka málið að nýju til meðferðar í samræmi við úrskurð áfrýjunarnefndar."
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira