Segir verstu hliðar kreppunnar ekki komnar fram Magnús Halldórsson skrifar 14. október 2012 13:12 Stjórnvöld ríkja í Evrópu og Bandaríkjunum verða að grípa til meira afgerandi aðgerða í baráttu sinni við skuldavandann, segir Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún segir tímann ekki vinna með stjórnvöldum.
Stjórnvöld ríkja í Evrópu og Bandaríkjunum verða að grípa til meira afgerandi aðgerða í baráttu sinni við skuldavandann, segir Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún segir tímann ekki vinna með stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hin franska Christine Lagarde, segir að enn séu verstu hliðar efnahagsþreninga í Evrópu ekki komnar fram, þar sem áhrif af miklum niðurskurði opinberra útgjalda muni til skamms tíma dýpka vandamál ríkja í álfunni. Það muni reyna á heimsálfuna, en aðgerðirnar séu nauðsynlegar til lengri tíma litið. Lagarde segir þó að ekki hafi enn verið gripið til nægilega róttækra aðgerða þegar kemur að skuldavandanum, því lykillinn að árangri til lengri tíma felist í því að klára lagabreytingar og aðgerðir fljótt og vel, svo að kastljósið geti farið að beinast að því hvernig megi auka hagvöxt. Lagarde segir að þetta eigi ekki síður við um Bandaríkin, þar sem mikilvægt sé að grípa til aðgerða sem séu sannfærandi og til þess fallnar að bæta úr bágri fjárhagsstöðu ríkissjóðs. Sérstaklega þurfi stjórnmálamenn að vera meðvitaðir um að hringlagaháttur í ríkisfjármálum, áður en nýtt fjárlagaár hefst í byrjun næsta árs, geti dýpkað vandann og grafið lánstrausti á fjármálamörkuðum. Sjá má umfjöllun BBC um þessi mál, auk vanda Grikklands, hér.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira