Mál þrotabús Baugs gegn Jóni Ásgeiri tekið fyrir Magnús Halldórsson skrifar 23. nóvember 2012 10:41 Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs.
Fyrirtaka er í skaðabótamáli þrotabús Baugs Group gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, fyrrverandi stjórnarformanni félagsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en búið krefur Jón Ásgeir persónulega um fimmtán milljarða króna. Málið snýst um það þegar Hagar voru seldir frá Baugi til eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. í lok júní 2008, í fléttu sem kölluð var Project Polo. Málið var höfðað í lok árs 2010 og þingfest í febrúar 2011. Fimmtán milljarðar af söluverðinu fóru beint í það að kaupa hlutabréf í Baugi af fjórum félögum, sem öll voru í eigu stjórnarmanna Baugs. Félögin voru Gaumur og Gaumur Holding, í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans, ISP eignarhaldsfélag, í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs, og Bague SA, í eigu Hreins Loftssonar. Skiptastjóri Baugs, Erlendur Gíslason hrl., lítur svo á að á þessum tíma hafi bréfin í Baugi verið nær einskis virði og Jón Ásgeir hafi með þessu misnotað aðstöðu sína hjá Baugi til að koma verðmætum frá félaginu, í vasa sjálfs sín og sér nákominna. Ingibjörgu og Hreini er hins vegar ekki stefnt í málinu, ekki frekar en öðrum stjórnarmönnum, þar sem Jón Ásgeir er talinn hafa borið mesta ábyrgð á fjárfestingum félagsins, eins og það er orðað í stefnu. Jón Ásgeir hefur neitað því alfarið að málið sé með einhverjum hætti óeðlilegt. Í viðtali við Fréttablaðið 15. júní fyrra, þegar greint var frá málinu, sagði hann að salan á Högum hafi verið að undirlagi viðskiptabanka Baugs, Kaupþings á þeim tíma. Þá segir hann að Baugur hafi ekki tapað á viðskiptunum og þau hafi fyrst og fremst verið hugsuð til þess að lækka skuldir Baugs. Fyrirtakan í dag er hluti af málsmeðferðinni fyrir dómstólum, þar sem gögn eru lögð fram, en ekki liggur fyrir enn hvenær aðalmeðferð í málinu fer fram.
Mest lesið Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Fleiri fréttir Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira