Innlent

Um helmingur ók of hratt á Borgarholtsbrautinni í gær

Umferðareftirlit. Myndin er úr safni.
Umferðareftirlit. Myndin er úr safni.
Umferðarlagabrot 34 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Lögreglan Fylgdist einnig með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, að Suðurbraut.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 42-68%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×