Nýtt álit um Gunnar kynnt eftir helgi Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. febrúar 2012 12:11 Gunnar Andersen hefur frest fram á mánudag til að mótmæla uppsögn.
Búist er við því að álit sem Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður og Ásbjörn Björnsson endurskoðandi unnu um hæfi Gunnars Þ Andersen, forstjóra FME, til þess að gegna starfi forstjóra stofnunarinnar verði gert opinbert eftir helgi. Gunnari var tilkynnt um uppsögn í gær en fær frest fram á mánudag til að mótmæla henni. Ekkert hefur verið gefið upp um það hvernig mat þeirra Ástráðar og Ásbjörns er frábrugðið áliti Andra Árnasonar hæstaréttarlögmanns sem hafði í tvígang komist að þeirri niðurstöðu að Gunnar væri hæfur til þess að gegna starfi forstjóra stofnunarinnar.Sat í stjórnum aflandsfélaga Stjórn FME leitaði til Andra Árnasonar árið 2010 og óskaði álits á atriðum sem vörðuðu hæfi Gunnars í tilefni af umfjöllun í skýrslu rannsóknarnenfdar Alþingis um viðskipti Landsbanka Íslands og félagsins LB Holding LTD. með hlutabréf Kaupþings banka hf. á árinu 2001, og í tilefni af upplýsingum um viðskipti Landsbankans og félagsins NBI Holdings með hlutabréf á árinu 2001. Andra var falið að skoða aðkomu Gunnars að þessum viðskiptum en hann var þá stjórnarmaður í síðarnefndu félgöum og hvaða þýðingu þetta hefði fyrir réttarstöðu hans og í ljósi stöðu hans sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Andri komst að þeirri niðurstöðu að Gunnar væri hæfur til að gegna stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins.Nýtt álit á hæfi Gunnars Þann 17. nóvember á síðasta ári fjallaði Kastljós svo um Gunnar Andersen og Fjármálaeftirlitið og nefndi ýmis atriði tengd fyrrgreindum álitaefnum. Kastljós gaf til kynna að fyrir lægju ný gögn í málinu. Andri var þá fenginn til að gera nýja úttekt á hæfi Gunnars. Í seinna áliti Andra kemur fram að í umfjöllun Kastljóss gæti nokkurs misskilnings og að hún sé að hluta til byggð á röngum forsendum. Það stafi meðal annars af því að gögn sem Kastljós vísar til hafi ekki varðað starfsemi þeirra félaga sem fjallað var um í þættinum. Eftir að Andri skilaði síðara áliti sínu voru þeir Ástráður og Ásbjörn beðnir um að gera nýtt álit um hæfi Gunnars. Það er niðurstaða þeirra að álitið sé ekki hafið yfir vafa.Niðurstaðan þvert á niðurstöðu Andra Þessi niðurstaða tvímenninganna er þvert á þá niðurstöðu sem Andri kemst að í áliti sínu en ekkert liggur fyrir um það hvaða forsendur liggja að baki þessum ólíku niðurstöðum. Aðilar málsins hafa verið þöglir. „Ég ætla bara ekkert að ræða þetta núna," sagði Ástráður þegar Vísir hafði samband við hann. Ekki hefur náðst í Ásbjörn en Gunnar og Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, vilja ekki tjá sig efnislega um álitið fyrr en það verður birt. Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að sjá mat sem Andri Árnason gerði eftir umfjöllun Kastljóss.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira