Ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir 10. október 2012 14:30 Birtíngur Félög í eigu Hreins Loftssonar eiga meirihlutann í Birtíngi. 365 miðlar eiga 16,5 prósenta beinan hlut í félaginu.
Útgáfufélagið Birtíngur tapaði 20,9 milljónum króna í fyrra. Það tap bætist við 55,9 milljóna króna tap þess árið áður. Eigið fé Birtíngs var neikvætt um 83,2 milljónir króna um síðustu áramót. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins. Birtíngur gefur meðal annars út Mannlíf, Vikuna, Hús og híbýli og Séð og heyrt. Félagið er að mestu í eigu félaga Hreins Loftssonar en auk þess eiga 365 miðlar 16,9 prósenta beinan hlut í því. Rekstrartekjur Birtíngs drógust saman um tólf milljónir króna á síðasta ári og voru 614 milljónir króna. Félagið skuldaði samtals 342,3 milljónir króna en eignir þess voru metnar á 259,1 milljón króna. Í skýringu í ársreikningi Birtíngs þar sem fjallað er um óvisst rekstrarhæfi félagsins segir að „þrátt fyrir að tap hafi verið af rekstri félagsins og að eigið fé sé neikvætt í árslok eru vísbendingar um að viðsnúningur hafi orðið á rekstrinum eftir umtalsverðar skipulagsbreytingar og hagræðingaraðgerðir ásamt með sölu á tapseiningum. […] Samt sem áður telur stjórn félagsins brýnt að vinna áfram að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í því skyni að tryggja rekstrarhæfi þess. Frá áramótum 2012 hafa verið gerðir nýir samningar við helstu lánardrottna og áfram hefur verið unnið að hagræðingu í rekstri."Uppfært: Skipting hlutafjár í Birtingi Í frétt í Markaðnum um útgáfufélagið Birting er ekki farið að öllu leyti rétt með skiptingu hlutafjár í félaginu. Hreinn Loftsson, aðaleigandi Birtings, segir að breytingar hafi orðið á skiptingu hlutafjár innan félagsins í mars og maí á þessu ári. Í kjölfarið er Hjálmur ehf. eigandi að 56,19 prósent hlut í Birtingi. Eigendur Hjálms eru félag í eigu Hreins Loftssonar sem á 52,71 prósent og 365 miðlar sem á 47,3 prósent. Ef hlutafé Hjálms í Birtingi yrði skipt niður á eigendur Hjálms myndi eignarhlutur 365 miðla í Birtingi vera 26,57 prósent. Aðrir eigendur Birtings eru félag í eigu Hreins með 35,73 prósent auk þess sem Birtingur á 8,07 prósent í sjálfu sér eftir breytingarnar. - þsj
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira