Myndi kosta hundruð milljarða 1. júní 2012 03:30 Samkvæmt skýrslunni myndi stærstur hluti kostnaðar falla á Íbúðalánasjóð, eða 67 til 167 milljarðar króna. fréttablaðið/gva
Tíu prósenta niðurfærsla allra húsnæðislána myndi kosta 124 milljarða króna og 25 prósenta niðurfærsla kostaði 310 milljarða. Stærstur hluti kostnaðarins myndi falla á Íbúðalánasjóð, eða 67 til 167 milljarðar eftir atvikum. Þá myndu innlánsstofnanir bera 40 til 99 milljarða kostnað og lífeyrissjóðirnir 18 til 44 milljarða. Þetta kemur fram í skýrslu um áhrif lækkunar höfuðstóls húsnæðislána, sem fjármálaráðuneytið lét vinna eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson og fleiri Alþingismenn óskuðu eftir skýrslu frá fjármálaráðherra um málið. Sveinn Agnarsson og Sigurður Jóhannesson hjá Hagfræðistofnun HÍ og Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur unnu skýrsluna. Lækkun höfuðstóls húsnæðislána um tíu til 25 prósent hefði veruleg áhrif á hagkerfið í heild. Umtalsverðum hluta af húsnæðisskuldum landsmanna yrði létt af húseigendum á kostnað eigenda fjármálastofnana, sem eru fyrst og fremst hið opinbera, eigendur lífeyrisréttinda og eigendur bankanna. Ríki og sveitarfélög myndu bera að minnsta kosti 70 prósent af kostnaðinum og einungis yrði því um tilfærslu á verðmætum að ræða. Kostnaður hins opinbera af lækkun höfuðstóls húsnæðislána yrði á bilinu ellefu til 41 prósent af útgjöldum ársins 2011.- þeb
Mest lesið Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Sjá meira