Viðskipti innlent

Kortavelta landsmanna eykst áfram milli ára

Kortavelta landsmanna heldur áfram að aukast milli ára. Heildarvelta debetkorta í ágúst s.l. var 37,7 milljarða kr. sem er 2,2% aukning miðað við sama mánuð árið áður og 6,6% aukning frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir einnig að heildarvelta kreditkorta í ágúst var 31,4 milljarðr kr. sem er 2,8% aukning frá fyrra ári en 3,3% minnkun frá fyrra mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×