Skráð atvinnuleysi jókst lítillega í nóvember 17. desember 2012 11:11
Skráð atvinnuleysi mældist 5,4% í nóvember sl., 0,2 prósentustigi meira en í október, samkvæmt tölum sem Vinnumálastofnun birti fyrir helgina. Fjölgaði einstaklingum á skrá um 375 á þessu tímabili. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandabanka. Þar segir að skráð atvinnuleysi mældist innan þess bils sem Vinnumálastofnun hafði reiknað með að atvinnuleysi yrði í mánuðinum (5,2%-5,5%). Er hér um hefðbundin árstíðaráhrif að ræða, en umsvif á vinnumarkaði minnka oft þegar kemur fram á haust og vetur. Sama þróun var uppi á teningnum á milli þessara mánaða í fyrra, en þá fór atvinnuleysi úr 6,8% í 7,1%. Í nóvember í fyrra voru að meðaltali 11.348 manns án atvinnu en í nóvember nú var þessi tala 8.562 manns og hefur atvinnulausum því fækkað um 2.786 á milli ára sem er til vitnis um bætt atvinnuástand. Atvinnuleysi er nú eins og fyrr segir komið niður í 5,4% en var í upphafi ársins 7,2%. Sé tekið mið af fyrstu ellefu mánuðum þessa árs hefur atvinnuleysi að jafnaði mælst 5,3%, en á sama tímabili í fyrra var það 7,4% og hefur því komið hratt niður undanfarna mánuði. Greiningin býst við því að atvinnuleysi muni enn fara lækkandi á næsta ári og spáir því að skráð atvinnuleysi á næsta ári verði 4,6% að meðaltali. „Tökum við þar inn í reikninginn að bráðabirgðaákvæðið um rétt einstaklinga til atvinnuleysisbóta í fjögur ár í stað þriggja verður ekki framlengt nú um áramótin. Atvinnuleysi samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunnar mun lækka af þessum sökum, en um 3.000 einstaklingar, sem er tæplega þriðjungur af þeim sem skráðir voru án atvinnu í nóvember sl., munu fullnýta sinn bótarétt á næsta ári," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Neytendur Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Viðskipti innlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Viðskipti erlent Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Viðskipti innlent Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Viðskipti innlent Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Fleiri fréttir Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun