"Hafði ekki hugmyndaflug í að þetta gæti orðið jafn slæmt" Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. apríl 2012 16:11 „
Ég hafði ekki hugmyndaflug í að þetta frumvarp gæti orðið jafn slæmt og það lítur út fyrir að vera fyrir útgerð, fiskvinnslu og sölustarfsemi og þar með atvinnustarfsemi í landinu," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og aðaleigandi Samherja um frumvörp sjávarútvegsráðherra til nýrra heildarlaga um stjórn fiskveiða annars vegar og veiðigjalds hins vegar. Eins og greint hefur verið frá gerir frumvarp sjávarútvegsráðherra um veiðigjald ráð fyrir tvíþættu veiðigjaldi. Annars vegar almennt veiðigjald, sem er 8 krónur á hvert kíló og svo sérstakt veiðigjald sem verður 70 prósent af samanlögðum hagnaði á hvert kíló í sjávarútveginum að frádregnum kostnaði og almennu veiðigjaldi, sem mun renna til ríkisins. Útgerðarmönnum finnst þetta allt of hátt. Og eyðileggi svigrúm þeirra til nauðsynlegra fjárfestinga í atvinnugreininni.Enginn stjórnarþingmaður kíkt í heimsókn Þorsteinn Már, sem var gestur Magnúsar Halldórssonar í nýjasta þættinum af Klinkinu, furðar sig á því að enginn af stjórnarþingmönnunum sem vilji gera breytingar á lagaumhverfi fiskveiða hafi heimsótt Samherja og séð hvernig fyrirtækið starfar. „Ég sakna þess að það hefur, af núverandi stjórnarþingmönnum, enginn heimsótt okkur og skoðað hvað við erum að gera. Mér finnst ótrúlegt að það sé hægt að ræða fiskveiðistjórnunarkerfið og dæma okkur norður og niður og virða ekki þá þekkingu sem hér er," segir Þorsteinn Már. Sjá má myndskeið þar sem Þorsteinn ræðir þessi mál hér fyrir ofan. Nýjasta þáttinn af Klinkinu í heild sinni má sjá hér. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Sjá meira