Tekjur ríkisins meiri en ráð var fyrir gert 8. ágúst 2012 05:30 Einstaklingar greiddu 4,2 milljörðum króna meira í tekjuskatt á fyrstu sex mánuðum ársins en áætlað hafði verið og lögaðilar 8,4 milljörðum króna meira. fréttablaðið/anton
Innheimtar tekjur ríkisins fyrstu sex mánuði ársins 2012 námu 251,9 milljörðum króna. Það er 23,2 milljörðum umfram áætlun. Á sama tíma hafa gjöld ríkisins dregist saman um 6,4 milljarða, voru 268,6 milljarðar til júníloka. Þetta kemur fram í mánaðaruppgjöri A-hluta ríkissjóðs fyrir júní 2012, sem kom út í gær. Skatttekjur og tryggingargjöld á tímabilinu námu 229,3 milljörðum króna, eða 16,5 milljörðum umfram áætlun. Þá voru skattar og tekjur tíu milljarðar umfram áætlun, 86,2 milljarðar í heild. Þar af var tekjuskattur einstaklinga 4,2 milljörðum umfram áætlun og tekjuskattur lögaðila um 8,4 milljarða króna. Skattur á fjármagnstekjur reyndist hins vegar 1,5 milljörðum lægri en áætlað hafði verið. Tekjur af sköttum á vöru og þjónustu voru 3,2 milljörðum umfram áætlun, og af virðisaukaskatti 2,1 milljarður króna. Þá voru aðrar tekjur alls 20,9 milljarðar króna, eða 5,5 milljarðar umfram áætlun. Þar af voru vaxtatekjur 7,9 milljarðar króna og arðgreiðslur frá Landsbanka Íslands og Seðlabanka Íslands 5,3 milljarðar króna. Tekjur af sölu eigna námu 1,2 milljörðum króna, eða einum milljarði umfram áætlun en það skýrist af hlutdeild ríkisins í hagnaði af gjaldeyrisútboðum Seðlabankans. Gjöld ríkissjóðs námu 268,6 milljörðum króna til júníloka, eða 6,4 milljörðum undir áætlun innan ársins, en hún byggir á fjárlögum og fluttum fjárheimildum frá fyrra ári. Helstu frávikin voru hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, eða 2,2 milljarðar króna, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, eða 1,4 milljarðar króna, og utanríkisráðuneytinu, um 1,1 milljarð króna. Umframgjöld fjármálaráðuneytisins námu hins vegar 0,2 milljörðum króna, sem og innanríkisráðuneytisins. Þá var fjármagnskostnaður 0,2 milljörðum króna umfram áætlun. Í uppgjörinu kemur fram að stór frávik á útkomu miðað við áætlun séu fátíð. „Helstu frávik þar sem gjöld reyndust umfram áætlun voru hjá Landspítala um 1,5 mja. kr. (einkum halli fyrri ára), lífeyrisskuldbindingar um 0,9 mja. kr. og Atvinnuleysistryggingasjóðs um 0,7 ma. kr.,“ segir í skýrslunni.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira