Íslenska krónan fallið um fjögur prósent 25. febrúar 2012 10:44
Íslenska krónan hefur fallið um meira en fjögur prósent gagnvart helstu viðskiptamyntum Íslands frá áramótum. Endurgreiðslur á erlendum lánum skýra lækkunina að hluta, en þær geta haft jákvæð áhrif til lengri tíma. Það merkir að erlendar myntir eru heilt yfir farnar að kosta meira, til dæmis kostaði evran um 159 krónur um áramótin, en kostaði tæpar 166 krónur í gær. Það hefur þær afleiðingar að íslenskur útflutningur er að verða meira virði, en á móti kemur að innflutningur á vörum erlendis frá er að verða dýrari. Dýrari innflutningur merkir að róður Seðlabankans í baráttunni við verðbólguna gæti þyngst, en aðilar á markaði bjuggust allt eins við stýrivaxtahækkun í mánuðinum, meðal annars vegna gengislækkunarinnar. Núverandi verðbólguspá bankans gengur út frá að gengi krónunnar gagnvart evru haldist nokkurnvegin óbreytt við 160 krónur, en það er nú nokkuð veikara eins og áður sagði. Það má eflaust nefna nokkrar ástæður fyrir sigi gengisins. Til dæmis hefur Bandaríkjadalur verið að sækja í sig veðrið undanfarna mánuði vegna aukins óróleika á evrusvæðinu, árstíðabundnir þættir og lakari viðskiptakjör skýra væntanlega almenna gengislækkun krónunnar að hluta, en einnig bendir ýmislegt til þess að útstreymi fjármagns sé vegna tiltölulega mikilla endurgreiðslna fyrirtækja og sveitarfélaga á erlendum lánum. Þannig eru áhrifin hugsanlega jákvæð á erlenda skuldastöðu landsins, þótt endurgreiðslurnar þrýsti genginu niður í bili.
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira