Framtakssjóðurinn seldi fyrir 2,7 milljarða 12. nóvember 2012 10:28 Brynjólfur Bjarnason er framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins.
Framtakssjóður Íslands hefur selt sjö prósenta hlut í Icelandair fyrir 2,7 milljarða króna, en hann á eftir söluna ríflega tólf prósent hlut í félaginu. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað mikið eftir að rekstur þess var endurskipulagður og það skráð á markað á nýjan leik. Tilkynnt var um sölu Framtakssjóðs Íslands á ríflega sjö prósent hlut í Icelandair Group með flöggun í kauphöllinni í morgun, en sjóðurinn á eftir söluna enn tólf prósent hlut í félaginu. Sjóðurinn fékk 2,7 milljarða króna fyrir hlut sinn, en gengi bréfa Icelandair er nú 7,65 og hefur það hakkað um tæplega 1,6 prósent í viðskiptum í dag. Gengi bréfa Icelandair hefur hækkað mikið frá því rekstur þess var endurskipulagður í kjölfar hrunsins, en nýir hluthfar, meðal annars Framtakssjóðurinn og fleiri fjárfestar, keyptu hluti í félaginu á genginu 2,5 fyrir tæplega þremur árum. Frá þeim tíma hefur gengið hækkað jafnt og þétt og er nú 7,65, eins og áður sagði, eða sem nemur ríflega þreföldu gengi bréfa félagsins eftir endurskipulagningu. Ekki liggur fyrir enn hvaða fjárfesta keyptu öll bréfin, en búast má við því að flagganir um einstök viðskipti, síðar í dag eða á morgun, muni skýra það að einhverju leyti. Rekstur Icelandair hefur gengið vel undanfarin misseri. Þannig hagnaðist Icelandair hlutfallslega mest fjögurra helstu norrænu flugfélaganna á þriðja ársfjórðungi, eða fjórum sinnum meira en SAS, svo dæmi sé tekið. Þannig varð hlutfall hagnaðar af veltu Icelandair, rúm 16 prósent, tæp 15 hjá Norwegian, tæp átta prósent hjá Finnair og aðeins 3,9 prósent hjá SAS, en það félag tilkynnti um róttækar björgunaraðgerðir í morgun, þar á meðal uppsagnir á 800 starfsmönnum og lækkun launa starfsmanna um 15 prósent.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira