Bretum býðst Tilboð aldarinnar um næstu helgi BBI skrifar 23. júlí 2012 17:00 Tommi á Búllunni.
Hamborgarabúllan er farin í útrás og mun opna í London öðru hvoru megin við næstu helgi. Þá mun Bretum loks bjóðast Tilboð aldarinnar (e. Offer of the century) að hætti Tomma fyrir 8,9 pund, sem nemur tæpum 1700 krónum. Unnið hefur verið að undirbúningi opnunarinnar síðustu mánuði. Og nú er stóri dagurinn loks í nánd. Búllan verður í svipuðum dúr og Íslendingar þekkja en einfaldari ef eitthvað er. „Það verða færri réttir á matseðli," segir Róbert Aron Magnússon, rekstraraðili Hamborgarabúllunnar í London. „Fólk er orðið gríðarlega spennt hérna. Það eru svona 20-30 manns á dag sem spyr hvenær við opnum. Fyrirtæki sýna þessu mikinn áhuga. Allir rosa spenntir að smakka," segir Róbert. Róbert segir að þeir séu komnir í samstarf við góða birgja, m.a. slátrara sem var valinn besti sjálfstæði slátrari Bretlands. „Við vissum það reyndar ekkert fyrr en við vorum búnir að taka ákvörðun. Við prófuðum hátt í 15 slátrara. Þetta var bara eins og fínasta vínsmökkun nema við náttúrlega kyngdum kjötinu," segir Róbert. Hann segir að langtímamarkmiðið sé að opna fleiri staði og byggja upp eins konar keðju. En í bili verður staðurinn bara einn. „Við bara bíðum og sjáum hvernig fólk tekur í þennan fyrsta stað," segir hann. Búllan verður í götu sem liggur samsíða Oxfordstræti skammt frá Debenhams. Þó staðurinn sé fyrst og fremst miðaður að breskum viðskiptavinum eru Íslendingum vitanlega velkomið að gæða sér á hinu gamalkunna tilboði aldarinnar á erlendri grundu.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Sjá meira