Huang vill enn reisa hótel í Reykjavík 25. júlí 2012 10:00 Huang Nubo
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo stefnir enn að því að reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Huang lýsti yfir áhuga á slíkri framkvæmd á síðasta ári þegar hann kynnti hugmyndir sínar um uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum. Að sögn talsmanns Huangs vill hann þó ganga frá samningum um uppbyggingu á Grímsstöðum fyrst. „Þetta stendur vissulega enn til. Það hefur hins vegar alltaf verið ætlunin að láta fyrst á það reyna hvort vilji sé til samstarfs hér á landi um uppbyggingu á Grímsstöðum. Um leið og fæst botn í það mál höfum við umboð til þess að fara að skoða hitt," segir Halldór Jóhannsson, landslagsarkitekt og talsmaður Huangs Nubo á Íslandi, og bætir við að hótelverkefnið í Reykjavík þurfi þó ekki endilega að taka lengri tíma en uppbyggingin á Grímsstöðum. Greint var frá því í síðustu viku að samningaviðræður Zhongkun, fjárfestingarfélags Huangs Nubo, og GÁF ehf., félags í eigu sex sveitarfélaga á Norðausturlandi, um kaup og leigu á Grímsstöðum á Fjöllum væru á lokametrunum. Áður en undirbúningur framkvæmda getur þó hafist á Grímsstöðum þarf Zhongkun einnig að klára ívilnunarsamning við iðnaðarráðuneytið. Þá þarf GÁF að semja við ákveðna landeigendur Grímsstaða um skiptingu á jörðinni. - mþl
Mest lesið Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Viðskipti innlent X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Viðskipti innlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Viðskipti innlent Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira