Viðskipti innlent

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7%

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í september hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×