Iceland Express í samstarf við Hinsegin daga 6. febrúar 2012 13:33
Iceland Express og Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride undirrituðu í dag samstarfssamning sem felur í sér stuðning Iceland Express við Hinsegin daga fyrir hátíð þeirra í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir einnig að félagið muni sjá um að flytja erlenda listamenn, sem koma fram á hátíðinni, til Íslands og styðja forráðafólk Hinsegin daga til vinnuferða í útlöndum. Með samningnum verður Iceland Express einn helsti stuðningsaðili Hinsegin daga. Hinsegin dagar í Reykjavík eru einn stærsti og mikilvægasti viðburður í landinu ár hvert og dregur til sín hátt í hundrað þúsund gesti. Hátíðin er vel þekkt í útlöndum og ætla má að hundruð ef ekki þúsundir ferðamanna sæki hátíðna ár hvert. Iceland Express mun taka þátt í því með Hinsegin dögum að kynna hátíðina enn frekar í öðrum löndum. Erlendar rannsóknir sýna að samkynhneigðir, tvíkynhneigðir og transgender fólk ferðast mikið og sækir sérstaklega til landa eins og Íslands þar sem réttindi samkynhneigðra eru virt og þar sem boðið er upp á afþreyingu sem höfðar sérstaklega til þeirra. Engin ástæða er til að ætla annað en að hlutfall samkynhneigðra í hópi ferðamanna til Íslands sé svipað og jafnvel hærra en hlutfall þeirra er almennt í samfélaginu. Það er þvi ekki ólíklegt að 30 til 50 þúsund samkynhneigðir, tvíkynhneigðir eða transgender ferðamenn komi til Íslands á ári hverju. Iceland Express vill þjóna þessum farþegum eins vel og öðrum farþegum til landsins og til að staðfesta það, gekk félagið í International Lesbian and Gay Travel Association (ILGTA) á síðasta ári. En það eru alþjóðleg ferðamálasamtök fyrirtækja sem bjóða samkynhneigðum þjónustu sína. Félagið mun í samstarfi við Express ferðir bjóða upp á pakkaferðir á Gay Pride hátíðir í öðrum löndum sem og pakkaferðir á Hinsegin daga í Reykjavík í byrjun ágúst, í samstarfi við Hinsegin daga.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira