Arion banki hagnaðist um 11,2 milljarða króna Magnús Halldórsson skrifar 31. ágúst 2012 13:16 Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2012 var jákvæð um 11,2 milljarða króna eftir skatta samanborið við 10,2 milljarða króna á árinu 2011. Arðsemi eigin fjár var 18,8% samanborið við 20,3% á sama tímabili árið 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka vegna hálfsuppgjörs bankans. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 11,8% en var 11,2% á sama tímabili árið 2011. Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 22,3% en í lok annars ársfjórðungs 2011 var það 21,4%. Krafa Fjármálaeftirlitsins kveður á um 16% eiginfjárhlutfall, en lögbundið lágmark er 8 prósent. Allir stóru bankarnir þrír, Íslandsbanki, Landsbankinn og Arion banki, hafa því skilað uppgjöri fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Samanlagður hagnaður bankanna þriggja, á fyrrnefndu tímabili var 34,7 milljarðar króna. Íslandsbanki með 11,6 milljarða hagnað, Landsbankinn 11,9 milljarða og Arion banki 11,2, eins og áður segir. Helstu atriðin úr tilkynningu Arion banka má sjá hér að neðan, þar meðal annars viðbrögð Höskuldar Ólafssonar bankastjóra við uppgjörinu.Helstu atriði árshlutareikningsins:Hagnaður eftir skatta nam 11,2 mö.kr. samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tímabili 2011.Hagnaður annars ársfjórðungs nam 6,8 mö.kr. samanborið við 7,2 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2011.Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 7,0 mö.kr. samanborið við 5,8 ma.kr. á síðasta ári.Rekstrartekjur námu alls 24,9 mö.kr. samanborið við 24,5 ma.kr. 2011.Hreinar vaxtatekjur námu 13,9 mö.kr. samanborið við 11,2 ma.kr. árið 2011.Arðsemi eigin fjár var 18,8% en var 20,3% árið 2011. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 11,8% samanborið við 11,2% á sama tímabili í fyrra.Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,4% á tímabilinu samanborið við 3,2% árið 2011.Launakostnaður hækkar um 12% milli ára, m.a. vegna nýs fjársýsluskatts á laun starfsmanna fjármálafyrirtækja sem nemur 5,45%.Reiknaður tekjuskattur nam 2,9 mö.kr. samanborið við 2,5 ma.kr. á sama tímabili 2011, sem er m.a vegna nýs 6% skatts á hagnað fjármálafyrirtækja umfram 1 ma.kr.Eiginfjárhlutfall var 22,3% samanborið við 21,4% á sama tíma 2011.Lausafjárhlutfall bankans var 32% sem er vel yfir 20% kröfu FME.Reiðufjárhlutfall bankans var 14%, en FME gerir kröfu um 5%.Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 578,9 mö.kr., samanborið við 447,7 ma.kr. á sama tíma 2011. Aukningin skýrist fyrst og fremst af yfirtöku á íbúðalánasafni Kaupþings undir lok árs 2011.Heildareignir námu 880,1 mö.kr., samanborið við 805,3 ma.kr. í lok júní 2011.Eigið fé bankans í lok júní 2012 var 125,1 ma.kr. en nam 117,2 mö.kr. í lok júní 2011. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, hafði þetta um uppgjörið að segja í tilkynningu frá bankanum: „Afkoma bankans fyrstu sex mánuði ársins er viðunandi og í samræmi við okkar væntingar. Ég er ánægður með þann stöðugleika sem uppgjörið sýnir. Afkoma bankans af reglulegri starfsemi var ásættanleg en þrátt fyrir góðan rekstur þá viljum við sjá þóknanatekjur bankans hækka og kostnað við rekstur bankans lækka. Að þessum þáttum munum við vinna á næstu misserum. Á tímabilinu höfum við selt hluti í félögum sem við höfum þurft að taka yfir og má þar nefna hluti í Högum, N1, BM Vallá og Pennanum. Þetta hefur gengið vel og hafði jákvæð áhrif á afkomu bankans upp á um tvo milljarða króna. Einnig hefur virðisbreyting útlána jákvæð áhrif sem nemur rúmum þremur milljörðum króna. Við höfum á þessum fyrstu mánuðum ársins unnið að því að auka fjölbreyttni í fjármögnun bankans með útgáfu sértryggðra skuldabréfa, jafnt verðtryggðra sem óverðtryggðra. Markaðurinn hefur tekið útgáfu bankans með jákvæðum hætti og munum við halda áfram á þeirri braut. Eitt helsta verkefni okkar á tímabilinu og fram á veg snýr að þjónustu við okkar viðskiptavini. Við leitum stöðugt leiða til að gera þjónustu okkar enn betri og eru í gangi innan bankans fjölmörg stór verkefni sem öll miða að þessu marki. Rík áhersla hefur verið á vöruþróun og nýlega kynntum við nýtt snjallsímaforrit, Arion banka appið, sem gerir notendum mögulegt að framkvæma margþættar aðgerðir með afar einföldum og þægilegum hætti í símanum. Það er ekki annað að sjá en að viðskiptavinir okkar kunni vel að meta þær nýju vörur og þá þjónustuþætti sem bankinn hefur kynnt til leiks á undanförnum misserum."
Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent